Norður-Kóreumenn segjast reiðubúnir til viðræðna Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. maí 2017 09:22 Kim Jong un, einræðisherra í Norður-Kóreu. Vísir/EPA
Norður-kóresk yfirvöld segja að þau séu tilbúin til að ganga að samningaborðinu með Bandaríkjamönnum en einungis „undir réttum kringumstæðum.“ BBC greinir frá. Samkvæmt upplýsingum frá Choe Son-hui, erindreka Norður-Kóreu, eru yfirvöld í Pyongyang tilbúin til þess að opna á viðræður við Bandaríkjamenn en þá yrðu Bandaríkjamenn að koma til móts við kröfur Norður-Kóreumanna. Ekki var tekið fram hvaða kröfur það voru en talið er víst að Bandaríkjamenn muni ekki ganga að samningaborðinu með Norður-Kóreumönnum nema þeir fallist á að hætta þróun eldflaugavopna. Fyrr í þessum mánuði sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, að það yrði heiður að fá að hitta Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. Hann hefur áður sagt að hann vilji leysa deiluna með friðsamlegum hætti en að hættan á „miklum, miklum átökum“ væri til staðar. Deilur Bandaríkjamanna og Norður-Kóreumanna hafa stigmagnast á undanförnum vikum og hafa Norður-Kóreumenn ítrekað haldið hersýningar til þess að sýna mátt sinn og megin á meðan Bandaríkjamenn hafa sent nokkur af sínum stærstu herskipum að Kóreuskaga.
Norður-Kórea Mest lesið Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Sveitarfélögin höfnuðu tillögunni á elleftu stundu Innlent Ætlar að tjalda í Kópavogi þangað til meirihlutinn springur Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Innlent Svona var blaðamannafundur nýs meirihluta í Reykjavík Innlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent Svona skipta oddvitarnir stólunum Innlent Algengt að rútubílstjórar keyri á túninu Innlent „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Innlent Fleiri fréttir Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Leiðtogi skuggalegs költs handtekinn Myndbönd sýna flugvélina lenda harkalega og enda á hvolfi Taldi sig vera að drepa Palestínubúa sem reyndust vera Ísraelar Sjá meira