Bein áhrif ferðaþjónustunnar jákvæð um 39 milljarða Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. júní 2017 19:57 Gert er ráð fyrir að 2,3 milljónir muni sækja Ísland heim á þessu ári. vísir/anton brink
Bein áhrif ferðaþjónustunnar á tekjur ríkis og sveitarfélaga árið 2015 voru jákvæð um 39 milljarða og ætla má að óbeinu áhrifin séu mikil. Þetta kemur fram í greiningu sem gerð var fyrir Stjórnstöð ferðamála og var kynnt í dag. Bein áhrif ferðamanna á tekjur og gjöld ríkissjóðs voru jákvæð um 28 milljarða og að auki voru bein áhrif á tekjur og gjöld sveitarfélaga jákvæð um 11 milljarða króna. Þá er áætlað er að ferðamenn hafi greitt 25 milljarða í virðisaukaskatt árið 2015, en rétt er að benda á að stór hluti ferðaþjónustunnar fór ekki í lægra þrep virðisaukaskattkerfisins fyrr en 2016. Er því gert ráð fyrir að erlendir ferðamenn hafi síðan þá greitt mun hærri upphæð í virðisaukaskatt en sem nemur 25 milljörðunum. Ásgeir Jónsson hagfræðingur furðar sig á því hve litlu fjármagni hafi verið varið í uppbyggingu innviða. „Á undanförnum árum má segja að hið opinbera hafi fengið hádegisverðinn ókeypis, ef svo má að orði komast, þar sem ferðaþjónustan hefur aflað gríðarlegra tekna á sama tíma og litlu hefur verið varið í uppbyggingu innviða,“ segir Ásgeir í tilkynningu. Greiningin tekur sem fyrr segir til ársins 2015 en þá komu 1,3 milljónir ferðamanna til Íslands. Gert er ráð fyrir að fjöldinn fari í 2,3 milljónir á þessu ári. Ferðamönnum fjölgaði um 40 prósent milli áranna 2015 og 2016.
Mest lesið Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira