„Þau komu á fund hjá mér síðast þegar ég var í París, í mars, og þau ákváðu að velja okkur inn,“ segir Katrín Alda Rafnsdóttir, eigandi KALDA, aðspurð hvernig það kom til að KALDA komst inn í Browns.

Katrín segir þetta vera spennandi tíma fyrir KALDA. „Þegar svona ungt merki kemst í svona stóra búð þá er það ákveðinn „game changer“. Ég finn alveg mikinn mun strax á áhuga frá fjölmiðlum og svoleiðis. Með tilkomu Browns er merkið að stækka, því núna gerum við fjórar línur á ári í staðinn fyrir tvær. Og framleiðslan er að aukast. Pöntun Browns var til dæmis mjög stór þannig að þetta breytir frekar miklu,“ segir Katrín.
Töskulína væntanlegSpurð út í hvar hún sjái merkið fyrir sér eftir fimm eða tíu ár segir Katrín: „Úff, tíu ár? Mig langar allavega að halda áfram að hanna skó og koma þeim í fleiri búðir, því það er að ganga mjög vel. Ég er með topplista yfir búðir sem mig langar að komast inn í, en þetta tekur auðvitað alltaf svolítinn tíma.“
„Við stefnum að því að kynna töskulínu fljótlega og svo hugsa ég að ef allt gengur vel þá er hægt að bæta inn fötum líka. En það er alltaf best að byrja bara með einn vöruflokk, eins og skó, og ná merkinu þannig af stað. Svo er hægt að bæta við í framhaldinu. Og 10 ára draumurinn er að hafa fimm KALDA búðir, staðsettar í uppáhaldsborgunum mínum!“
Katrín er greinilega að fara skynsamlega leið með merkið.
„Já, ég veit bara að það er langbest að gera þetta svona. Í allri þessari samkeppni þá virkar vel að sérhæfa sig í einhverju einu og ef þú nærð því á flug þá getur þú fikrað þig áfram í öðru.“Það eru spennandi tímar fram undan hjá KALDA og margt í gangi. „Það er ýmislegt fleira á döfinni, en ekkert sem ég get sagt nánar frá eins og er. Nema að við verðum með viðburð á tískuvikunni í New York í september,“ segir Katrín að lokum.
Þess má geta að KALDA fæst í Yeoman á Skólavörðustíg og í vefversluninni Shopbop.com. Von bráðar fer línan svo inn í Browns Fashion og samhliða því í vefverslunina Farfetch en Browns er í eigu Farfetch. Það er því ljóst að KALDA er komið inn á kortið á erlendri grundu.