Benedikt dregur í land með afnám seðlanna Jakob Bjarnar skrifar 23. júní 2017 11:02 Fjármálaráðherra segir þjóðina ekki tilbúna í slíkar aðgerðir, sem fela í sér það að stærstu peningaseðlarnir verði aflagðir. visir/vilhelm
Benedikt Jóhannesson fjármálaráherra hefur dregið í land með áform þess efnis að vert væri að taka 10 og 5 þúsund króna seðlana úr umferð. Hann segir þjóðina ekki tilbúna í slíkar aðgerðir.Mikil andstaða við fyrirhugað afnám seðlanna Gríðarleg andstaða myndaðist við þær hugmyndir sem fram komu hjá fjármálaráðherra þess efnis að vert væri að leggja niður 10 og 5 þúsund króna seðlana. Spjótin standa á Benedikt úr öllum áttum, ekki síst úr ranni samstarfsflokksins í ríkisstjórn, Sjálfstæðisflokki og keppast menn við að fordæma hugmyndina. Gagnrýnin var af margvíslegum toga, einkum þó sú að verið væri að færa með aðgerðum hins opinbera kortafyrirtækjunum viðskipti á silfurfati. Í raun neyða fólk til að skipta við þau, um það væri ekkert val. Í öðru lagi var það nefnt að með því að kortavæða öll viðskipti væri hægt að fylgjast með hverju fótmáli borgara hvar sem þeir veifuðu kortum sínum; Ísland yrði draumaríki Stóra bróður.Dæmi um harða gagnrýni má sjá í samantekt Vísis frá í gær.Falskir reikningar fyrir allt að sjö milljarða Benedikt, formaður Viðreisnar, hefur nú ritað pistil á vef Viðreisnar þar sem hann gerir nánar grein fyrir þessu máli. „Beinum sjónum að svarta hagkerfinu og skattsvikum“ er yfirskrift pistils hans. Benedikt greinir frá því að um sé að ræða tillögur tveggja starfshópa sem hann skipaði með það fyrir augum að ráðast gegn svartri atvinnustarfsemi. Fjármálaráðherra undirstrikar að hann hafi ekki haft nein afskipti af því starfi. Annars vegar er um hóp átta sérfræðinga sem Anna Borþórsdóttir Olsen leiddi sem fjallar um hugsanlegar aðgerðir til að stöðva útgáfu á fölskum reikningum í viðskiptum í innflutningi. Þetta er þekkt leið til undanskota, sem meðal annars var fjallað um í tengslum við Panamaskjölin sem snýst um að erlendur aðili sem íslenskur innflytjandi skrifar út reikning fyrir hærri fjárhæð en raunverulega er samið um. Kaupandi færir kostnað hjá sér og fær peninga til sín skattlaust. „Talið er að þessi undanskot geti numið einum til sjö milljörðum króna hér á landi á ári hverju.“Ekki verið að tala um að banna notkun reiðufjár Seinni skýrslan er skrifuð af 11 sérfræðingum undir forystu Þorkels Sigurlaugssonar.Hún fjallar um svarta hagkerfið og umfang skattaundanskota sem metið er á 80 til 120 milljarða. Hópurinn setur fram nokkrar hugmyndir um hvernig hægt sé að berjast gegn þessu, meðal annars þá að takmarka notkun reiðufjár. „Innkaup og flutningur fjármuna milli landa í stórum stíl á ekki að tíðkast með notkun reiðufjár. Peningaþvætti er afleiðing skattsvika sem tíðkast hér á landi eins og annar staðar.“ Benedikt segir að þetta atriði hafi einkum staðið í Íslendingum. Hann undirstrikar að ekki sé verið að tala um að banna notkun reiðufjár.Þjóðin ekki tilbúin „Meðaltalsútreikningar sýna að meðal-Íslendingurinn á tæplega 200 þúsund krónur í reiðufé þar af helminginn í tíuþúsundköllum. Vegna þess að fæstir kannast við að eiga slíkar fjárhæðir í seðlum vaknar grunur um að reiðufé sé súrefni svarta hagkerfisins. Tillögur um í skýrslunni um minnkun reiðufjár er (en ekki bann við notkun þess) eru því til þess að minnka svarta hagkerfið og þrengja að þeim sem þar starfa, en ekki vega að heiðarlegu fólki.“ Þá segir fjármálaráðherra að hugmyndin um að taka tíuþúsundkallinn úr notkun hafi verið nægjanlega frumleg til að allir geti haft á henni skoðun. „Miðað við fyrstu viðbrögð er samfélagið ekki tilbúið í svo róttæka hugmynd, en hún er sem betur fer ekkert grundvallaratriði í tillögum hópsins.“
Tengdar fréttir Lagt til að 10.000 og 5.000 krónu seðlar verði afnumdir Talið er að um hundrað milljörðum sé komið undan skatti á Íslandi á hverju ári og segir fjármálaráðherra raunhæft að ná í stóran hluta þess fjár. 22. júní 2017 11:53 Fjármálaráðherra fordæmdur á Facebook Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra er úthrópaður á samfélagsmiðlum eftir að hann kynnti þær fyrirætlanir sínar að taka 5 og 10 þúsund króna seðlana úr umferð. 22. júní 2017 16:02 Mest lesið Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Erlent Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ Innlent Fleiri fréttir Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Sjá meira
Lagt til að 10.000 og 5.000 krónu seðlar verði afnumdir Talið er að um hundrað milljörðum sé komið undan skatti á Íslandi á hverju ári og segir fjármálaráðherra raunhæft að ná í stóran hluta þess fjár. 22. júní 2017 11:53
Fjármálaráðherra fordæmdur á Facebook Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra er úthrópaður á samfélagsmiðlum eftir að hann kynnti þær fyrirætlanir sínar að taka 5 og 10 þúsund króna seðlana úr umferð. 22. júní 2017 16:02