Viðbúnaður hjá Landhelgisgæslunni vegna báta sem duttu úr ferilvöktun Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. júlí 2017 12:20 Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gærkvöldi vegna báts sem ekki náðist samband við. Vísir/Vilhelm
Talsverður viðbúnaður var hjá Landhelgisgæslunni í gær og í dag vegna báta sem dottið höfðu úr ferilvöktun og ekki náðist samband við fyrr en seint og um síðir. Í tilkynningu minnir gæslan sjófarendur á að hlusta á rás 16 sem er neyðarrás sjómanna og gæta að ferilvöktunarbúnaði. Fyrra atvikið kom upp um hádegisbil í gær þegar bátur, sem var á við veiðar norðvestur af Straumnesi, hætti að sýna í ferilvöktunarkerfum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar. „Reynt var að kalla í bátinn á rásum 9 og 16 og hringt í skipstjórann en án árangurs. Þá gekk illa að ná í nærstadda báta í gegnum neyðarrásina. Hins vegar náðist samband símleiðis við tvo báta: Fríðu Dagmar, sem skar á línuna og hélt þegar í stað til leitar, og Einar Hálfdáns, sem einnig hætti veiðum til að leita. Þegar rúmur hálftími var liðinn frá því báturinn datt úr vöktun voru björgunarsveitir á Vestfjörðum kallaðar út, svo og þyrla Landhelgisgæslunnar. Nokkrum mínútum eftir að þyrlan fór í loftið kom Fríða Dagmar að bátnum sem saknað var og amaði ekkert að um borð. Voru þá bjargir afturkallaðar. Skipstjórinn endurræsti ferilvöktunarbúnaðinn og hafði samband við stjórnstöð LHG sem áminnti hann um að hlusta framvegis á rás 16,“ segir í tilkynningu gæslunnar. Síðara atvikið kom svo upp í morgun þegar bátur sem var um tuttugu sjómílur norðvestur af Patreksfirði datt úr vöktun. „Hvorki náðist í skipstjórann símleiðis né á rásum 9 og 16. Kallað var í nærstadda báta en enginn svaraði uppkallinu. Tveir bátar sem hringt var í staðfestu að þeir hefðu skömmu áður séð bátinn sem saknað var og fór annar þeirra, Katrín II, að svipast um eftir honum. Laust fyrir klukkan níu birtist báturinn loks aftur í ferilvöktunarkerfum stjórnstöðvar og hafði skipstjórinn um svipað leyti samband eftir að hafa séð á síma sínum að reynt hefði verið að hringja í sig. Þessi atvik eru ekki einsdæmi og því brýnir stjórnstöð LHG fyrir sjófarendum að hafa kveikt á og fylgjast með ferilvöktunarbúnaði, auk þess að hlusta stöðugt á neyðarrás 16. Hún er eitt mikilvægasta öryggistæki sjófarenda en ef hlustun á hana er ekki virk veitir hún falskt öryggi.“
Mest lesið Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Innlent Fleiri fréttir Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Yfirstandandi aðgerðir um borð í Bandero Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sjá meira