Nálægt fjórfaldri tvennu í leik í Evrópukeppninni í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2017 20:15 Þóranna Kika Hodge-Carr. Mynd/FIBA
Keflvíkingurinn Þóranna Kika Hodge-Carr átti sannkallaðan stórleik með átján ára landsliðinu á Evrópumóti U18 í Dublin á Írlandi í dag. Íslensku stelpurnar unnu 83 stiga sigur á Albaníu, 117-34, eftir að hafa verið komnar í 33-4 eftir fyrsta leikhluta og með 24 stiga forystu í hálfleik, 46-22. Frammistaða Þórönnu stóð hinsvegar upp úr en hún var nálægt fjórfaldri tvennu í leiknum. Þóranna Kika Hodge-Carr endaði með 31 stig, 8 fráköst, 8 stolna bolta og 7 stoðsendingar. Hún fékk 47 framlagssstig á þeim 27 mínútum sem hún spilaði. Þóranna varð Íslandsmeistari með meistaraflokki Keflavíkur á síðasta tímabili en hún stimplaði sig inn í úrslitakeppninni þar sem hún stóð sig vel í stærstu leikjum tímabilsins. Valskonan Dagbjört Dögg Karlsdóttir skoraði 21 stig og keflvíski miðherjinn Birna Valgerður Benónýsdóttir var með 20 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar. Frákastahæsti leikmaður liðsins var Haukakonan Ragnheiður Björk Einarsdóttir með 14 fráköst auk 8 stiga. Íslensku stelpurnar höfðu tapað þremur fyrstu leikjum sínum þar af aðeins með þremur stigum á móti Austurríki í gær. Í dag kom fyrsti sigurinn og hann var af stærri gerðinni.Þóranna Kika Hodge-Carr kyssir Íslandsbikarinn í vor.Vísir/ÓskarÓ
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira