Sigurður Pálsson hefur aðeins brugðið sér frá Jakob Bjarnar skrifar 3. október 2017 11:17 Fjölskylda, vinir og samstarfsmenn kvöddu Sigurð Pálsson í gær. visir/ernir
Sigurður Pálsson (30. júlí 1948 – 19. september 2017) var jarðsunginn í gær. Troðfull Hallgrímskirkja og þar tóku til máls félagar hans úr rithöfundastétt þeir Einar Kárason og Þórarinn Eldjárn auk þess sem sjá fjórði sem skipaði sérlegan kaffiklúbb fjögurra skálda, Sjón, sendi kveðju í formi ljóðs sem hann samdi í anda Sigurðar. Við vorum þarna öll, hans kynslóð og mín, segir Illugi Jökulsson rithöfundur á Facebook-síðu sinni: „Stelpurnar voru furðu margar búnar að lita á sér hárið grátt, og strákarnir sumir hvíthærðir eða sköllóttir; það er víst líka í tísku. Eftir á rifjuðum við upp að líklega værum við farin að hittast ansi oft í jarðarförum, og þeim á bara eftir að fjölga. En í bili vorum við þarna öll. Nema hann. Hann hafði aðeins brugðið sér frá.“ Sigurður Pálsson fékkst við allar tegundir ritlistar; skáldsögur, leikrit, þýðingar en hans verður líkast til einna helst minnst sem ljóðskálds. Hann var sem holdtekja ljóðsins í útliti, þar sem hann fór fínlegur um götur Reykjavíkur, milli kaffihúsa, í ökklasíðum frakka með trefil og gott ef ekki alpahúfu á höfði. „Hann var sjálfur lifandi skáldskapur,“ segir vinur hans og útgefandi, Jóhann Páll Valdimarsson, í minningargrein. „Það var alltaf gaman. Hann var í senn ærslafullur og djúpt hugsandi og ævinlega með óvænt sjónarhorn á alla hluti.“Mér finnst grafalvarlegt hvernig ráðamenn hafa í svörum sínum og útskýringum stöðugt afvegaleitt tungumálið, ráðist inn í samband orðs og merkingar á skítugum skónum, reynt að rjúfa og brengla samband orðs og merkingar.visir/ErnirVinir hans og kollegar minnast hans með fjölmörgum innihaldsríkum minningargreinum sem birtast um þessar mundir á síðum Morgunblaðsins: „Skáldskapur Sigurðar Pálssonar er dýrðarsöngur um lífið í rangsnúnum heimi. Skáldskapur hans mun lifa,“ skrifar Kristján Þórður Hrafnsson og Helga Mogensen leitar, líkt og margir, huggunar í skálskap Sigurðar:Treystu náttmyrkrinuFyrir ferð þinniHeitu ástríku náttmyrkrinuÞá verður ferð þínFull af birtuFrá fyrstu línu til þeirrar síðustu Sigurðar er minnst sem leiftrandi kennara á sviði ritlistar og skáldskaparfræða og hann lét til sín taka í leikhúsinu. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, vinur hans og samstarfsmaður til margra ára, segir Sigurð eitt fremsta leikskáld okkar, fyrr og síðar. „Málsnilld, knappt form, fá orð sem búa yfir margræðri merkingu og hin ósögðu stigu fram, djúpur skilningur á öllu sem lifir.“ Stúdentauppreisn í París ´68 setti mark sitt á Sigurð Pálsson alla tíð en hann var þá staddur þar við nám. „Og ræðumar - svona ræður hélt ég að ekki væri hægt að halda! Þetta voru sannkallaðir málfrelsisdagar og enn hef ég ekki heyrt í ræðumönnum sem jafnast á við stúdentana í maí 68. Ég prísa mig til dæmis sælan að hafa verið staddur í Sorbonne af einhverri tilviljun 3. maí þegar 22. mars hreyfingin með Daniel Cohn Bendit og félaga í fararbroddi mætti til leiks. Þeir voru allir jafn-brilljant! - Daniel kannski mest áberandi af því hann var raddsterkastur,“ sagði Sigurður í viðtali við áðurnefndan Illuga í viðtali sem birtist í Vikunni 24. apríl 1986. Sigurður var ekki raddsterkur maður en orð hans voru og eru máttug. Og ekki hefði, í ljósi sögunnar, þurft að koma á óvart að Sigurður náði öðrum betur að kjarna inntak mótmæla á Íslandi þegar hann flutti ræðu á Austurvelli 1. mars 2014. „Rós er rós er rós sagði Gertrud Stein. Og við segjum: loforð er loforð er loforð! Svik eru svik eru svik. Mér finnst grafalvarlegt hvernig ráðamenn hafa í svörum sínum og útskýringum stöðugt afvegaleitt tungumálið, ráðist inn í samband orðs og merkingar á skítugum skónum, reynt að rjúfa og brengla samband orðs og merkingar.“
Tengdar fréttir Hættum að væla og lifum lífinu lifandi Sigurður Pálsson sendi nýverið frá sér sína sextándu ljóðabók, þýðingar á prósaljóðum Arthur Rimbaud, skáldinu sem bylti ljóðinu, auk þýðinga á ljóðum Willem M. Roggeman. Mögnuð afköst hjá manni sem stendur andspænis dauðleika sínum en syngur áfram um lífið, vitandi að harmurinn er til. 5. nóvember 2016 08:00 Missti ekki úr kennslustund þrátt fyrir erfið veikindi Sigurðar Pálssonar rithöfundar er minnst sem vinsæls og virts kennara. Hann var fjölhæfur listamaður og andríkt ljóðskáld. Hann barðist við krabbamein í þrjú ár. 21. september 2017 06:00 Fágaður húmoristi sem söng um lífið Sigurður Pálsson rithöfundur er látinn 69 ára að aldri eftir erfið veikindi. Sigurður skrifaði fjölmargar ljóðabækur, skáldsögur og leikrit svo eitthvað sé nefnt. Samferðamenn hans lýsa honum sem fáguðum húmorista sem söng um lífið, allt til dauðadags. 20. september 2017 21:00 Sigurður Pálsson er látinn Sigurður greindist með ólæknandi krabbamein í brjósthimnu, svonefndan asbestkrabba, fyrir um þremur árum. 20. september 2017 09:53 Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Fleiri fréttir Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Sjá meira
Hættum að væla og lifum lífinu lifandi Sigurður Pálsson sendi nýverið frá sér sína sextándu ljóðabók, þýðingar á prósaljóðum Arthur Rimbaud, skáldinu sem bylti ljóðinu, auk þýðinga á ljóðum Willem M. Roggeman. Mögnuð afköst hjá manni sem stendur andspænis dauðleika sínum en syngur áfram um lífið, vitandi að harmurinn er til. 5. nóvember 2016 08:00
Missti ekki úr kennslustund þrátt fyrir erfið veikindi Sigurðar Pálssonar rithöfundar er minnst sem vinsæls og virts kennara. Hann var fjölhæfur listamaður og andríkt ljóðskáld. Hann barðist við krabbamein í þrjú ár. 21. september 2017 06:00
Fágaður húmoristi sem söng um lífið Sigurður Pálsson rithöfundur er látinn 69 ára að aldri eftir erfið veikindi. Sigurður skrifaði fjölmargar ljóðabækur, skáldsögur og leikrit svo eitthvað sé nefnt. Samferðamenn hans lýsa honum sem fáguðum húmorista sem söng um lífið, allt til dauðadags. 20. september 2017 21:00
Sigurður Pálsson er látinn Sigurður greindist með ólæknandi krabbamein í brjósthimnu, svonefndan asbestkrabba, fyrir um þremur árum. 20. september 2017 09:53