Stundin krefst endurupptöku á Melaskólamálinu Jakob Bjarnar skrifar 22. nóvember 2017 14:19 Jón Trausti ætlar ekki að greiða Dagnýju 200 þúsund krónur refjalaust.
Stundin krefst endurupptöku á dómi sem féll yfir þáverandi blaðamanni miðilsins, Hjálmari Friðrikssyni, sem dæmdur var til að greiða Dagnýju Annasdóttur, fyrrverandi skólastjóra Melaskóla, 200 þúsund krónur. Sá kostnaður fellur á blaðið. „Dómurinn var felldur án þess að Stundin gripi til varna, þar sem við misstum af þingfestingu málsins og Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður var ófáanlegur til þess að fresta og gefa okkur færi á að halda vörnum,“ segir Jón Trausti Reynisson ritstjóri Stundarinnar. Hann bætir því við að þau á Stundinni ætli ekki að gefast upp heldur fara þegar fram á endurupptöku málsins.Umdeildur skólastjóri Eins og fram kom í frétt Vísis í morgun var um talsvert hitamál að ræða en hart var sótt að þáverandi skólastjóra, bullandi óánægja var meðal ýmissa þeirra sem að skólastarfinu komu, með Dagnýju eins eins og Vísir greindi frá. Dagný hugðist meðal annars fara fram með eineltismál á hendur ótilgreindum hópi.Óhætt er að segja að gustað hafi um Dagnýju og Melaskóla en átökunum lauk með því að gerður var starfslokasamningur við skólastjórann.Ummælin sem Hjálmar hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni, í óbeinni ræðu eru: „Hún stjórnar með harðri hendi og leggur fólk í einelti.“ Og: „Hún er sögð vanhæf til skólastarfs, stýri skólanum af vankunnáttu, og sumir kennarar upplifi einelti af hennar höndum.“Fráleitt að telja ummælin úr lausu lofti gripinJón Trausti segir það hafa legið fyrir í umfjöllun fleiri fjölmiðla að 30 kennarar hafi lýst því yfir að þeir myndu hætta störfum ef hún starfaði áfram sem skólastjóri. „Bekkjarfulltrúar töldu skólastarfinu „ógnað“, samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu þeirra, vegna starfshátta skólastjórans. Það er því varla hægt að fallast niðurstöðu sem felur í sér að ummælin séu fengin úr lausu lofti, hvað þá spunnin upp.“ Þá bendir hann á að ekki sé tekið tillit til neinna efnisatriða í dómnum öðrum en þeim sem „Vilhjálmur Vilhjálmsson og skólastjórinn færðu fram. Samt er einfalt gúggl nóg til að sjá hvað gekk á þarna í skólanum, áður en skólastjórinn hætti að vilja stórs hluta starfsfólks.“Heimildamaðurinn stígur framHjálmar, sem nú starfar á DV, upplýsti svo í Facebookhópi sem kallast Fjölmiðlanördar, að sá heimildarmaður sem hann vitnaði til væri reiðubúinn að stíga fram.Hjálmar Friðriksson segir að heimildamaður sinn sé nú tilbúinn að stíga fram. Og þá er að sjá hvort dómsstólar líti til þess.„Fyrst þetta er komið fram hér þá verð ég eiginlega að leggja spilin á borðið. Heimildarmaður minn í þessu máli var þáverandi trúnaðarmaður kennara í skólanum. Hún gat þá ekki komið fram undir nafni vegna stöðu sinnar en var reiðubúin að gera það núna þegar ég spurði hana á dögunum. Þar sem að lögum samkvæmt á viðkomandi fjölmiðil að greiða kostnað sem fellur af svona málum lét ég Stundina alfarið um að reka málið. Ég lét ritstjóra þar vita að þessi kona væri tilbúin að bera vitni. Svo gerist það í morgun að ég sé þennan dóm. Vonandi vinnst þetta í Hæstarétti.“Staða gagnvart heimildamönnum Málið snýr þannig að stöðu blaðamanns gagnvart heimildarmönnum sínum. Óvíst er að það hafi gildi í sjálfu sér þó heimildamaður sé leiddur fram, trúnaður blaðamanna við heimildamenn sína verður að vera yfir vafa hafið. Reyndar er blaðamönnum meinað í lögum um fjölmiðla (25. grein) að upplýsa um heimildarmenn hafi þeir óskað nafnleyndar.„Starfsmönnum fjölmiðlaveitu er jafnframt óheimilt að láta af hendi gögn sem hafa að geyma upplýsingar um heimildarmann eða höfund í slíkum tilvikum.“ En, Stundin mun þó fyrir dómi geta sýnt fram á svo óyggjandi er að Hjálmar var ekki að búa þetta til.
Tengdar fréttir Skólastjóraskipti í Melaskóla eftir verulegar væringar Rottugangur var í skólanum í haust og ganga kærur og klögumál á víxl. 1. desember 2015 15:21 Kennarauppreisn í Melaskóla 30 kennarar hóta að hætta ef Dagný Annasdóttir tekur aftur við sem skólastjóri Melaskóla. 18. janúar 2016 13:25 Dagný hættir sem skólastjóri Starf skólastjóra verður auglýst laust til umsóknar á næstunni. 28. janúar 2016 16:58 Melaskólastjóri fær 200 þúsund krónur frá blaðamanni Stundarinnar Hjálmar Friðriksson, blaðamaður Stundarinnar, þarf að greiða Dagnýju Annasdóttur, fyrrverandi skólastjóra Melaskóla, 200 þúsund krónur vegna ummæla sem viðmælandi hans lét falla í úttekt um starfshætti skólastjórans. 22. nóvember 2017 06:33 Borgin gerir starfslokasamning við skólastjóra Melaskóla Dagný Annasdóttir segir umræða um hana hafa verið óvæga en hún hugsi hlýtt til Melaskóla og voni að nú skapist friður um skólastarfið. 28. janúar 2016 18:59 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira
Skólastjóraskipti í Melaskóla eftir verulegar væringar Rottugangur var í skólanum í haust og ganga kærur og klögumál á víxl. 1. desember 2015 15:21
Kennarauppreisn í Melaskóla 30 kennarar hóta að hætta ef Dagný Annasdóttir tekur aftur við sem skólastjóri Melaskóla. 18. janúar 2016 13:25
Dagný hættir sem skólastjóri Starf skólastjóra verður auglýst laust til umsóknar á næstunni. 28. janúar 2016 16:58
Melaskólastjóri fær 200 þúsund krónur frá blaðamanni Stundarinnar Hjálmar Friðriksson, blaðamaður Stundarinnar, þarf að greiða Dagnýju Annasdóttur, fyrrverandi skólastjóra Melaskóla, 200 þúsund krónur vegna ummæla sem viðmælandi hans lét falla í úttekt um starfshætti skólastjórans. 22. nóvember 2017 06:33
Borgin gerir starfslokasamning við skólastjóra Melaskóla Dagný Annasdóttir segir umræða um hana hafa verið óvæga en hún hugsi hlýtt til Melaskóla og voni að nú skapist friður um skólastarfið. 28. janúar 2016 18:59