Ágúst Elí: Hrikalega gaman að vera með alla á móti sér Smári Jökull Jónsson skrifar 14. janúar 2018 21:23 „
Það var gaman að koma inn á völlinn fyrir framan troðfulla höll. Við vorum að reyna að sækja mörk og stóðum lengi í vörninni en þetta gekk ekki hjá okkur í dag,“ sagði Ágúst Elí Björgvinsson sem fékk tækifæri í íslenska markinu í síðari hálfleik í tapleiknum gegn Króötum. Króatar náðu yfirhöndinni í seinni hálfleik eftir jafnan fyrri hálfleik og unnu að lokum 7 marka sigur. Markvarslan í síðari hálfleik var lítil hjá íslenska liðinu á meðan kollegi þeirra hinu megin varði afar vel. „Mér fannst við alltaf eiga séns á að komast inn. Svo fór markmaðurinn þeirra að verja vel og það braut svolítið sjálfstraustið þegar hann er að verja úr dauðafærum. Við vorum góðir varnarlega nær allan leikinn en það vantaði markvörslu meirihlutann af tímanum. Því miður fór þetta svona.“ Leikurinn í kvöld var sá fyrsti hjá Ágústi Elí á stórmóti fyrir Íslands hönd. Hann náði að verja tvö skot og sagði það hefði verið skemmtilegt að spila en stemmningin á leiknum í kvöld var rosaleg. „Ég væri að ljúga ef ég segði að ég hefði ekki verið með smá hnút í maganum fyrir leikinn en það var meiri svona spennuhnútur. Mér leið vel og það var hrikalega gaman að vera með alla á móti sér. Mér fannst þetta gaman þangað til að leikurinn kláraðist og við töpuðum,“ sagði Ágúst Elí að lokum.
Íslenski handboltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira