Lýsti stuðningi við áherslur aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna Birgir Olgeirsson skrifar 6. febrúar 2018 14:29 Guðlaugur Þór ásamt António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Utanríkisráðuneytið.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í gær fund með António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuðstöðvum stofnunarinnar í New York. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en þar segir að Guðlaugur hitti einnig Miroslav Lajcak, forseta allsherjarþingsins, og Jeffrey Feltman, yfirmann stjórnmáladeildar Sameinuðu þjóðanna. Guterres hefur nú verið rúmt ár við stjórnvölinn í Sameinuðu þjóðunum. Á þeim tíma hefur hann beitt sér fyrir yfirgripsmiklum umbótum á starfsemi stofnunarinnar til að gera hana skilvirkari og hraða viðbragðsgetu , enda verkefnin mörg og krefjandi. Á fundi sínum með aðalframkvæmdastjóranum lýsti utanríkisráðherra stuðningi íslenskra stjórnvalda við áherslur Guterres og mikilvægi þess að stofnunin geti sinnt því hlutverki sem hennir er ætlað í að tryggja frið og öryggi og sjálfbæra þróun. Hann benti einnig sérstaklega á mikilvægi þess að aðalframkvæmdastjórinn beiti sér áfram fyrir aukinni virðingu fyrir þjóðarétti og mannréttindum. „Sameinuðu þjóðirnar eru okkur mikilvægari en margan grunar. Á þeim vettvangi eru öll ríki jafn rétthá og saman geta smáríki staðið vörð um sameiginlega hagsmuni, þ.m.t. virðingu fyrir þjóðarétti sem sjálfstæði okkar er byggt á,“ er haft eftir Guðlaugi Þór í tilkynningunni. „Heimsmarkmiðin sem við samþykktum fyrir rúmum tveimur árum setja greinilega mark sitt á allt starf stofnunarinnar. Ég var stoltur að geta sagt frá því að samhliða vinnu stjórnvalda að Heimsmarkmiðunum hafi mörg íslensk fyrirtæki einsett sér að vinna að.“Fundurinn fór fram í New York í gær.UtanríkisráðuneytiðGuterres lagði áherslu á að Ísland geti haft mikil áhrif á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þar sem oft sé litið til Íslands sem sáttasemjara, enda sé Ísland forysturíki á sviði jafnréttis og mannréttinda sem njóti trausts. Hann þakkaði einnig mikilvæg framlög til lykilstofnana. Forseti allsherjarþingsins þakkaði ráðherra framlag Íslands í mannréttindanefnd allsherjarþingins, en Einar Gunnarsson, fastafulltrúi Íslands, gegndi formennsku í nefndinni sl. haust og áframhaldandi ábyrgðarstörfum. Þeir ræddu hlutverk smáríkja innan stofnunarinnar, stuðning við endurbætur aðalframkvæmdastjórans og hvernig heimsmarkmiðin mynda umgjörð um alþjóðlegt samstarf. Framundan eru umræður um endurskoðun samvinnu um ósmitbæra sjúkdóma og fór ráðherra yfir áherslu Íslands á taugasjúkdóma í því sambandi. Þá er ljóst að miklu skiptir að alþjóðlegar samningaviðræður um fólksflutninga, sem framundan eru, skili árangri en þeim á að ljúka á þessu ári. Stjórnmáladeild Sameinuðu þjóðanna fylgist með þróun mála á átakasvæðum og þar sem hætta er á að til ófriðar komi, veitir aðalframkvæmdastjóra og erindrekum hans ráðgjöf og vinnur að forvörnum og friðarumleitunum um allan heim. Á fundi með Jeffrey Feltman, yfirmanni deildarinnar, var gengið frá samningi um tveggja ára framlag til hennar. Guðlaugur Þór sagði deildina vinna þýðingarmikið starf; takmarkið væri að koma í veg fyrir átök en á meðan þau geisa gegni pólitísk greining og ráðgjöf lykilhlutverki.
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Lögregla í eltingaleikjum við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent Fleiri fréttir Lögregla í eltingaleikjum við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Viðreisnarfélögum fjölgað um helming fyrir prófkjör Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Guðjón endurkjörinn og Simon líka Mannabreytingar samráðsfunda eins og tiltekt á jólakortalista Óttast vaxtahækkanir vegna sleggjunnar sem stjórnvöld „fengu í trýnið“ Verðbólgan eykst en loðnan gleður Sjá meira