Innlent

Íkveikja í Mið­borginni

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
FotoJet (83)
Samsett

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um íkveikju í íbúðarhúsi í miðbæ Reykjavíkur í dag. Gerandi er enn ókunnur en málið er í rannsókn. Minniháttar skemmdir urðu á húsinu. 

Er þetta meðal þeirra 65 mála sem koma fram í yfirliti lögreglu frá því klukkan 5 í morgun til 17 síðdegis í dag. Alls séu sex vistaðir í fangageymslu lögreglu. 

Í hverfi 108 í Reykjavík var tilkynnt um innbrot og þjófnað og er það mál í rannsókn. Sömuleiðis hafi lögreglu borist þrjár tilkynningar um þjófnað í verslun í sama hverfi en voru þau mál afgreidd á vettvangi. 

Í hverfi 221 í Hafnarfirði barst lögreglu tilkynning um skemmdarverk á nokkrum bílum þar sem rúður þeirra hafi verið brotnar. Gerandi sé ókunnur. 

Þá barst lögreglu tilkynning um húsbrot á Kjalarnesi. Einn hafi verið handtekinn og vistaður í geymslu lögreglu sökum ástands. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×