Zuma á útleið? Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. febrúar 2018 07:53 Hinn umdeildi Jacob Zuma. Vísir/afp
Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, er nú undir sívaxandi þrýstingi um að segja af sér en viðræður um málið fóru fram í gær með háttsettum meðlimum Afríska þjóðarráðssins, flokki Zuma. Hann er sakaður um spillingu af margvíslegu tagi og í desember missti hann sæti sitt sem leiðtogi þjóðarráðsins til Cyril Ramaphosa. Ramaphosa er sagður vera að reyna að koma Zuma frá með friðsömum hætti svo ekki komi til átaka innan þjóðarráðsins fyrir komandi forsetakosningar á næsta ári. Óttast er að deilurnar kunni að kljúfa flokkinn og reyna fulltrúar beggja fylkinga hvað þeir geta að varna því að svo fari. Slíkur klofningur kæmi á versta tíma fyrir Þjóðarráðið enda verður kosið til suður-afríska þingsins á næsta ári. Framámenn í flokknum eru sagðir á vef breska ríkisútvarpsins vera að undirbúa brotthvarf Zuma úr stjórnmálum. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á að hann segi af sér eða að þingið víki honum úr embætti. Þeir vildu í það minnsta lítið tjá sig um málið þegar þeir mættu einn af öðrum að heimili Zuma í höfuðborginni Pretoríu í gær. Þar sátu þeir á rökstólum klukkustundum saman en niðurstaða fundarins er enn á huldu.
Suður-Afríka Mest lesið Haft höggbor beint fyrir utan í hálft ár og kominn með nóg Innlent Tveggja vikna tvíburasystrum vísað úr landi Innlent Stímir óhrædd í gin ísraelska sjóhersins Innlent Söguðu gat á flugsafn til að stinga inn Boeing 757 Innlent Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Erlent Kom ráðherra á óvart að viðræðum hefði verið slitið Innlent Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Erlent Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Erlent Hafði hvorki þekkingu né umboð til að tjá sig um fjármálin Innlent Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Erlent Fleiri fréttir Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Vilja Diddy í ellefu ára fangelsi „Við erum ekki í stríði en við búum ekki við frið“ Um þúsund manns teknir af lífi í Íran það sem af er ári Tugir drengja fastir í rústum skóla sem hrundi til grunna Leiðtogar fagna áætluninni en bíða svara frá Hamas Misstu allt samband við Internetið Sjá meira