Norður Kóreumenn sagðir hafa lýst yfir vilja til viðræðna við Bandaríkjamenn 25. febrúar 2018 11:53 Moon Jae-in, forseti Suður Kóreu, og norður kóreski hershöfðinginn Kim Yong-chol Vísir/EPA
Yfirvöld í Norður Kóreu eru sögð reiðubúin til viðræðna við bandarísk yfirvöld. Greint er frá þessu á vef fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC en þar segir að þetta hafi orðið ljóst eftir að norður kóreski hershöfðinginn Kim Yong-chol hitti forseta Suður Kóreu, Moon Jae-in, fyrir lokaathöfn Vetrarólympíuleikanna í Pyeongchang í Suður Kóreu. Á vef BBC er því haldið fram að þetta sé tilraun Norður Kóreu til að spilla sambandi Suður Kóreu og Bandaríkjamanna. BBC segir einnig frá því að dóttir Donalds Trump forseta Bandaríkjanna, Ivanka Trump, sé viðstödd lokaathöfnina. Eru bandarískir embættismenn sem eru viðstaddir Ólympíuleikanna sagðir hafa útilokað að hitta sendinefnd Norður Kóreu. Hefur BBC eftir Bandaríkjamönnum að Norður Kóreumenn hafi ákveðið að hætta við fund með Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, á meðan opnunarhátíð leikanna stóð. Yfirvöld í Bandaríkjunum kynntu á föstudag frekari þvinganir á Norður Kóreu til að fá þá til að láta af kjarnorkuvopnatilraunum sínum. Norður Kóreumenn lýstu því yfir fyrir skömmu að þessar þvinganir væru ekkert annað en stríðsyfirlýsing af hálfu Bandaríkjamanna. Í yfirlýsingu frá yfirvöldum í Norður Kóreu vegna ákvörðunar Bandaríkjamanna kom fram að yfirvöld í Norður og Suður Kóreu hefðu átt í góðu samstarfi á meðan Vetrarólympíuleikarnir hafa staðið yfir. Hins vegar voru yfirvöld í Norður Kóreu ekki eins ánægð með Bandaríkjamenn og sögðu þá hafa aukið hættuna á stríði til muna.
Norður-Kórea Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Fleiri fréttir 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Sjá meira