Haukakonur verða deildarmeistarar með sigri í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2018 14:30 Helena Sverrisdóttir. Vísir/Ernir
Haukastrákarnir eru orðnir deildarmeistarar í Domino´s deild karla í körfubolta og í kvöld geta Haukastelpurnar leikið það eftir. Haukaliðið heimsækir Val í toppslag deildarinnar á Hlíðarenda í kvöld og með sigri þá tryggir Haukaliðið sér deildarmeistaratitilinn og heimavallarrétt út úrslitakeppnina. Leikur Vals og Hauka hefst klukkan 19.30 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3. Haukastrákarnir voru að verða deildameistarar í fyrsta sinn en Haukastelpurnar geta unnið sinn fimmta deildarmeistaratitil en þær unnu hann einnig árin 2006, 2007, 2009 og 2016. Það eru ennþá þrjár umferðir eftir þegar leikirnir klárast í kvöld en Haukaliðið væri með sigri komið með sex stiga forystu á Val og um leið búið að tryggja sér betri stöðu í innbyrðisleikjum. Valskonur töpuðu á móti Skallagrími í Borgarnesi á sunnudagskvöldið og það eru þau úrslit sem gefa Haukakonum þetta tækifæri að tryggja sér deildarmeistaratitilinn á heimavelli liðsins sem er í öðru sæti. Haukakonur unnu sinn þrettánda deildarsigur í röð á laugardaginn en liðið er búið að vinna alla leiki sína síðan að þær mættu síðast á Hlíðarenda 2. desember og töpuðu þá 78-68. Síðan þá hefur Haukaliðið unnið tvo sigra á liðum Breiðabliks, Keflavíkur, Skallagríms, Stjörnunnar, Njarðvíkur og Snæfells og svo einn sigur á Val á sínum eigin heimavelli. Vinni Haukaliðið í kvöld nær liðið því að vinna öll hin deildarinnar tvisvar sinnum í einum rykk. Valskonur hafa átt í miklum vandræðum með Helenu Sverrisdóttur í fyrstu þremur leikjum liðanna í vetur en Helena er með þrennu að meðaltali á móti Val á tímabilinu, hefur skorað 11,7 stig, tekið 13,7 fráköst og gefið 14,7 stoðsendingar að meðaltali í leik á móti Hlíðarendaliðinu.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira