Dæmdur nauðgari ákærður fyrir nauðgun þvert á beiðni brotaþola Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. mars 2018 10:15 Lögreglan hélt rannsókn sinni áfram þrátt fyrir að kæra væri dregin til baka. Vísir/Hanna
37 ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðgun og brot í nánu sambandi með því að hafa á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð unnustu sinnar. Málið vakti mikla athygli þegar það kom upp fyrir tæpu einu og hálfu ári en unnustan hætti við að kæra málið og lýsti því að menn vopnaðir byssu hefðu komið á heimili hennar og ógnað henni.RÚV greinir frá því að aðalmeðferð í málinu hafi hafist í gær í Héraðsdómi Reykjaness en því er framhaldið í dag að því er fram kemur á dagskrá dómsins. Þinghald í málinu er lokað. Maðurinn, hinn 36 ára gamli Stefán Þór Guðgeirsson, neitar sök. Lögregla hefur fulla heimild til að rannsaka og gefa út ákæru í málum, óháð því hvort þau eru kærð eða ekki, ef hún telur tilefni til.Aðalmeðferð í málinu fer fram í Héraðsdómi Reykjaness.vísir/gvaDró kæruna til baka Upphaf málsins má rekja til þess að konan leitaði á neyðarmóttöku Landspítalans þann 10. desember 2017 og lýsti ofbeldi mannsins. Voru teknar margvíslegar ljósmyndir af áverkum á hnjám, hálsi og baki auk þess sem lýst var miklum eymslum við endaþarm. Fram kemur í skýrslu lögreglu að hún hafi lýst atburðum á greinargóðan hátt í tímaröð og því ofbeldi sem hún var beitt. Voru lýsingarnar á ofbeldinu mjög grófar. Þá sagðist hún vera hrædd við manninn. Var Inga Lillý Brynjólfsdóttir skipuð réttargæslumaður konunnar. Fjórum dögum síðar, þann 14. desember barst lögreglu umboð til Sveins Andra Sveinssonar þess efnis að hann væri tilnefndur réttargæslumaður hennar. Með umboðinu fylgdi yfirlýsing frá konunni þar sem hún frásögn hennar var gjörbreytt. Nú segði hún kynlífið hafa verið með hennar samþykki og hún hefði stundað gróft kynlíf. Var heimild lögreglu til að kalla eftir læknisvottorði frá Landspítalanum afturkölluð. Upplýsingar um breytingar á framburði brotaþola birtust í greinargerð lögreglu í dómi Hæstaréttar. Undraðist Sveinn Andri að nafns hans væri dregið inn í umræðuna af lögreglu. Hann gæti ekki annað en trúað orðum skólstæðings síns.Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari sækir málið.Vísir/RakelNýttu heimild til hlerunar Þrátt fyrir að konan hefði dregið kæru sína til baka hóf lögregla rannsókn á málinu eins og hún hefur heimild til. „Við rannsökum málin í samræmi við þau gögn sem liggja fyrir hverju sinni. Ef við höfum gögn til að styðjast við þá förum við eins langt og við getum í öllum málum. Rannsókn í þessu máli miðar vel. Við erum að rannsaka mjög alvarlegt brot og gerum það sem við getum til að upplýsa hvað átti sér þarna stað í samræmi við þau gögn sem við höfum,“ sagði Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Rannsókn gekk hægt þar sem konan vildi ekki aðstoða lögreglu. Sagðist hún upplifa sig sem glæpamann vegna þess að lögregla beiti hlerunarbúnaði auk þess að leggja hald á tölvu í eigu sonar hennar og síma á heimilinu. „Það er alltaf hægt að teygja það í allar áttir hvort [aðgerðirnar] eru miklar eða ekki. Við erum að rannsaka mjög alvarlegt brot sem við lítum alvarlegum augum og notum þau úrræði sem við þurfum til þess að upplýsa þannig mál,“ sagði Árni Þór.Óttaðist „skósveina“ mannsins Hlerunaraðgerðir stóðu yfir í um mánuð. Svo var konan og fleiri vitni yfirheyrð samtímis í janúar til að lágmarka möguleikann á samræmingu vitnisburðar. Að rannsókn lokinni var málið sent embætti héraðssaksóknara sem ákvað að ákæra í málinu. Var ákæra gefin út í lok nóvember síðastliðnum. Það þýðir að saksóknari telji málið líklegra en ella að það leiði til sakfellingar. Stefán Þór neitar sök í málinu og sagði í skýrslutöku lögreglu að um gagnkvæman vilja hefði verið að ræða. Fyrst sagði hann þau hafa kysst og kelað en eftir að hafa heyrt af framburði konunnar breytti hann framburði sínum og sagði þau hafa stundað endaþarmsmök með samþykki beggja. Systir konunnar viðurkenndi fyrir lögreglu þann 16. desember að hún óttaðist manninn og „skósveina hans.Stefán Þór var í viðtali hjá fréttastofu Stöðvar 2 árið 2013 þar sem neysla á Litla-Hrauni var til umfjöllunar.Með fimm ára dóm á bakinuStefán Þór hlaut fimm ára dóm árið 2012 fyrir að hafa nauðgað konu sem hann ætlaði að kaupa vændi af. Var um þyngingu að ræða en héraðsdómur hafði áður dæmt Stefán Þór í fjögurra ára fangelsi. Samkvæmt lýsingu á atburðum kom Stefán Þór í íbúð konunnar og bað hana um kynlífsgreiða. Hún neitaði og kvaðst vera þreytt. Hann mun þá hafa nauðgað henni. Í dómi Hæstaréttar var hann bæði fundinn sekur um að hafa reynt að kaupa vændisþjónustu en líka að hafa þröngvað konunni með líkamlegu ofbeldi til samræðis og annarra kynferðismaka, slegið hana í læri, sprautað úr slökkvitæki yfir hana og hótað henni að svipta hana vegabréfi hennar. Stefán Þór fékk reynslulausn í ágúst 2016 þegar tæp tvö ár voru eftir af dómi hans. Hann var dæmdur til að ljúka afplánun sinni þegar málið sem nú er rekið fyrir dómstólum kom á borð lögreglu. Árið 2007 var Stefán Þór dæmdur í 21 mánaða skilorðsbundið fangelsi í héraðsdómi í Nordhom í Þýskalandi.
Lögreglumál Tengdar fréttir Hrottalegt nauðgunarmál: Konan nýtur verndar en réttargæslumaður fullyrðir að hún sé unnusta hins grunaða Stefán Þór Guðgeirsson hlaut fimm ára dóm fyrir nauðgun árið 2012. Hann var á reynslulausn í desember þegar hann var handtekinn grunaður um hrottalega nauðgun. 28. desember 2016 13:07 Lögregla hleraði síma brotaþola í nauðgunarmáli Kona sem hefur stöðu brotaþola í nauðgunarmáli segist upplifa sig sem glæpamann vegna þess að hún neitar að tjá sig við lögreglu um málið. Lögreglan hefur haldlagt tölvu og síma í hennar eigu. 12. apríl 2017 05:00 Lögreglan skapar vernd og öryggi fyrir brotaþola í nauðgunarmáli Mál konu sem hætti við að kæra nauðgun er í forangi hjá lögreglu. Þetta segir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari í málinu. Konan er undir eftirliti lögreglu og nýtur verndar lögreglu. 28. desember 2016 20:00 Í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun og tilraun til vændiskaupa Hæstiréttur dæmdi í dag Stefán Þór Guðgeirsson í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu sem hann hafði ætlað að kaupa vændi af. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í fjögurra ára fangelsi fyrir sama brot. Brotið var framið í september 2009. 20. september 2012 16:48 Lögreglan heldur rannsókn á kynferðisofbeldi og frelsissviptingu til streitu Lögregla telur að frásögn konunnar á neyðarmóttöku og áverkar á henni bendi til þess að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi. 31. janúar 2017 17:49 Lýsti hrottalegri nauðgun en hætti við að kæra eftir að menn mættu til hennar vopnaðir byssu Karlmaður sem grunaður er um að hafa nauðgað konu og svipt hana frelsi sínu í einbýlishúsi á suðvesturhorninu þarf að afplána 630 daga eftirstöðvar fangelsisrefsingar sinnar. 27. desember 2016 17:30 Mest lesið „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Gerðu árásir á eyju í Hormússundi í nótt Erlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Innlent Fleiri fréttir Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Sjá meira
Hrottalegt nauðgunarmál: Konan nýtur verndar en réttargæslumaður fullyrðir að hún sé unnusta hins grunaða Stefán Þór Guðgeirsson hlaut fimm ára dóm fyrir nauðgun árið 2012. Hann var á reynslulausn í desember þegar hann var handtekinn grunaður um hrottalega nauðgun. 28. desember 2016 13:07
Lögregla hleraði síma brotaþola í nauðgunarmáli Kona sem hefur stöðu brotaþola í nauðgunarmáli segist upplifa sig sem glæpamann vegna þess að hún neitar að tjá sig við lögreglu um málið. Lögreglan hefur haldlagt tölvu og síma í hennar eigu. 12. apríl 2017 05:00
Lögreglan skapar vernd og öryggi fyrir brotaþola í nauðgunarmáli Mál konu sem hætti við að kæra nauðgun er í forangi hjá lögreglu. Þetta segir Jón H.B. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari í málinu. Konan er undir eftirliti lögreglu og nýtur verndar lögreglu. 28. desember 2016 20:00
Í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun og tilraun til vændiskaupa Hæstiréttur dæmdi í dag Stefán Þór Guðgeirsson í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu sem hann hafði ætlað að kaupa vændi af. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í fjögurra ára fangelsi fyrir sama brot. Brotið var framið í september 2009. 20. september 2012 16:48
Lögreglan heldur rannsókn á kynferðisofbeldi og frelsissviptingu til streitu Lögregla telur að frásögn konunnar á neyðarmóttöku og áverkar á henni bendi til þess að hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi. 31. janúar 2017 17:49
Lýsti hrottalegri nauðgun en hætti við að kæra eftir að menn mættu til hennar vopnaðir byssu Karlmaður sem grunaður er um að hafa nauðgað konu og svipt hana frelsi sínu í einbýlishúsi á suðvesturhorninu þarf að afplána 630 daga eftirstöðvar fangelsisrefsingar sinnar. 27. desember 2016 17:30