Metnaðargræðgi Korkimon Ritstjórn skrifar 23. mars 2018 10:00 Mynd/Anna Maggý
Helgarnar á að nýta í að næra líkama og sál - með því til dæmis að fara á listasýningar og nóg er í boði. Við mælum með þessari hér. Metnaðargræðgi sem er fyrsta einkasýning myndlistakonunnar Melkorku Katrínar eða Korkimon sem opnar í dag í Kjallaranum í Geysi heima. Melkorka útskrifaðist úr háskólanum Sarah Lawrence College í fyrra og hefur verið starfandi listamaður síðan. Listaverk Korkimon bera titla sem ríma við sköpunarstíl hennar; hvatvísi og röð mistaka með skipulögðum hætti. Í þessari sýningu spyr hún til dæmis spurningarinnar, hvers vegna þarf alltaf að vera gagn af hlutum? Hvers vegna þurfum við að setja allt í hólf? Skilgreina hvern einasta hlut? Hugsun um gagnleika allra hluta kemur í veg fyrir framfarir og nýjungar. Tilgangurinn er ekki endilega neinn. Þannig hafnar Korkimon leikreglum samfélags fullorðinna Á sýningunni er að finna 6 teikningar og 5 skúlptúra. Hægt er að lesa meira um sýninguna hér.
Mest lesið Anna Wintour gefur Zoolander góð ráð Glamour Kendall klæddist sama kjól og Paris Hilton í 21 árs afmælinu Glamour Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Glamour Börn ritstjóra Vogue trúlofuð Glamour Bradley Cooper og Jake Gyllenhaal lesa hlutverk Cher Glamour Kendall Jenner er nýtt andlit Mango Glamour Hvað verður hún í ár? Glamour Sumartískan að hætti Victoriu Beckham Glamour Plakatið fyrir Oceans 8 lofar góðu Glamour Sól og sumar hjá Rodebjer Glamour