Íslendingar fá 25 milljarða til jarðvarmaverkefna í Kína Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. mars 2018 16:38 Frá undirritun samningsins í Gamla bíó. Mynd/Arctic Green Energy
Arctic Green Energy og kínverska fyrirtækið Sinopec Green Energy Geothermal hafa undirritað samning um fjármögnun er nemur 250 milljónum Bandaríkjadala, eða um 25 milljörðum íslenskra króna. Fjármagnið fá fyrirtækin frá Þróunarbanka Asíu (ADB) til áframhaldandi þróunarverkefna í Kína. Samstarfssamningurinn var undirritaður í Gamla bíó í dag en um er að ræða stærstu fjárfestingu Íslendinga í Kína. Í tilkynningu kemur auk þess fram að yfirlýst markmið beggja aðila sé að draga úr loftmengun og losun gróðurhúsalofttegunda vegna húshitunar með því að skipta mengandi orkugjöfum á borð við kolaorku út fyrir náttúrulegan jarðvarma. Upphitun húsa með kolum er ein helsta orsök loftmengunar í Kína. „Fjármagnið frá Þróunarbanka Asíu gerir AGE og SGE kleift að eflast í baráttunni við loftmengun, og um leið að veita íbúum Kína þarfa og umhverfisvæna hitaveitu,“ var haft eftir Hauki Harðarsyni, stjórnarformanni AGE. Arctic Green Energy Corporation er íslenskt félag sem stofnað var til að þróa og reka umhverfisvænar jarðhitaveitur í Asíu. Sinopec Green Energy er í eigu Arctic Green Energy og kínverska félagsins Sinopec sem er þriðja stærsta fyrirtæki heims. SGE er stærsta jarðhitaveita heims með 328 hitaveitustöðvar í um 40 borgum og sýslum í Kína, segir í tilkynningu. Greint var frá samstarfssamningi Orkustofnunar, Arctic Green Energy og Sinopec um samvinnu og samráð á sviði jarðvarmsrannsókna haustið 2016.
Tengdar fréttir Orkustofnun, Arctic Green Energy og Sinopec í samstarf á sviði jarðvarmarannsókna Sinopec er þriðja stærsta fyrirtæki heims. 27. september 2016 16:31 Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Sjá meira
Orkustofnun, Arctic Green Energy og Sinopec í samstarf á sviði jarðvarmarannsókna Sinopec er þriðja stærsta fyrirtæki heims. 27. september 2016 16:31