Vef RÚV lokað vegna tölvuárásar Kristín Ólafsdóttir skrifar 14. maí 2018 21:07 Sjónvarpshúsið í Efstaleiti. Vísir/ernir
Vefur Ríkisútvarpsins, ruv.is, lá niðri í rúma klukkustund í kvöld vegna tölvuárásar sem gerð var á áttunda tímanum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Ríkisútvarpið birti á Facebook-síðu sinni í kvöld. Árásin, sem er svokölluð DDoS-árás, var gerð um klukkan 19:40 og í kjölfarið var ákveðið að loka fyrir vefinn. „Sem varúðarráðstöfun var lokað fyrir alla umferð á vefinn sem veldur því að hann er ekki aðgengilegur. Unnið er hörðum höndum að því að stöðva árásina og koma ruv.is í loftið,“ segir enn fremur í tilkynningu en ekki er enn ljóst hversu langan tíma það mun taka. Þetta er í annað sinn á einum mánuði sem Ríkisútvarpið verður fyrir barðinu á tölvuþrjótum. Í apríl var greint frá því að vefur Ríkisútvarpsins hafi legið niðri rúmar þrjár klukkustundur vegna árása tölvuþrjóta. Í það skipti fólst árásin í því að nokkrir hlekkir á vefnum vísuðu út fyrir vef Ríkisútvarpsins og á vafasamt efni.Uppfært klukkan 21:29: Búið er að opna fyrir vef Ríkisútvarpsins á nýjan leik. Vefurinn varð aftur aðgengilegur klukkan 20:50 í kvöld.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira