MH17: Segja Rússa ábyrga fyrir því að flugvélin var skotin niður Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 25. maí 2018 08:53 Rannsakendur á vettvangi þar sem MH17 var skotin niður. vísir/getty
Ástralía og Holland, tvö af þeim löndum sem sæti eiga í alþjóðlegri rannsóknarnefnd vegna þess þegar malasísk farþegaflugvél var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014, hafa nú formlega sakað Rússa um að bera ábyrgð á því að vélinni var grandað. Frá þessu er greint á vef BBC en í gær var sagt frá niðurstöðum rannsóknarnefndarinnar varðandi það að flugskeytið sem notað var til að skjóta niður vélina hefði tilheyrt rússneska hernum. Skeytinu var skotið frá svæði aðskilnaðarsinna í Úkraínu sem voru studdir af Rússum. Allir þeir sem voru um borð í flugi MH17, eða alls 298 manns, fórust þegar vélinni var grandað. Hún var á leiðinni frá Amsterdam til Kuala Lumpur. Talsmaður rússneskra yfirvalda sagði í gær að Rússar gætu ekki samþykkt það sem sannleikann í málinu að flugskeytið hafi komið frá rússneska hernum.
Ástralía MH17 Tengdar fréttir MH17: Segja flugskeytið hafa tilheyrt rússneska hernum Flugskeytið sem grandaði malasísku flugvélinni sem var skotin niður yfir Úkraínu sumarið 2014 tilheyrði rússneska hernum. 24. maí 2018 10:22 Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Innlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Fleiri fréttir Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sjá meira
MH17: Segja flugskeytið hafa tilheyrt rússneska hernum Flugskeytið sem grandaði malasísku flugvélinni sem var skotin niður yfir Úkraínu sumarið 2014 tilheyrði rússneska hernum. 24. maí 2018 10:22