Skotið yfir markið á Laugardalsvelli Benedikt Bóas skrifar 2. júní 2018 08:45 Aðskilnaður stuðningsmanna aðkomuliðs er ekki varanlegur og er ófullnægjandi og ekki alltaf öruggur. Þá er hvorki salernisaðstaða né veitingasala fyrir þessa stuðningsmenn sem stenst reglur UEFA eða FIFA. Fréttablaðið/Vilhelm
Eitt af 25 bestu landsliðum heims spilar á velli sem er ekki boðlegur. Laugardalsvöllur er fjárhagsleg byrði á KSÍ og þarf Reykjavíkurborg um fyrirsjáanlega framtíð að niðurgreiða völlinn á hverju ári. Innviðir eru úreltir, miðaframboð er takmarkað, skortur er á aðstöðu og innviðum sem hefur áhrif á upplifun stuðningsmanna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ellefu skýrslum sem birtar hafa verið um nýjan þjóðarleikvang. Þegar núverandi staða er skoðuð sést að aðgerða er þörf. Unnt væri að gera ýmsa bragarbót á núverandi aðstöðu til að uppfylla lágmarkskröfur og er gert ráð fyrir að slíkt myndi kosta um 500 milljónir og upp í einn milljarð króna. Það myndi þó ekki tryggja að hægt væri að leika á vellinum í mars og nóvember þegar ný Þjóðardeild verður sett á laggirnar né heldur fyrirbyggja tapreksturGlæstir sigrar íslenska landsliðsins hafa fengið verðskuldaða athygli. Búið er að taka til í umgjörð liðsins og næsta skref er að búa til völl sem sæmir eitt af 25 bestu landsliði heims. Fréttablaðið/VilhelmKSÍ, ríkið og Reykjavíkurborg hafa stofnað undirbúningsfélag sem á að undirbúa lokaákvörðun um nýjan þjóðarleikvang. Á meðan kerfið vinnur á sínum hraða mun eitt af 25 bestu landsliðum heims spila á velli sem stenst ekki alþjóðlegar kröfur og rekstrarforsendur hans eru ekki ásættanlegar. Í einni af skýrslunum kemur fram að nýr þjóðarleikvangur verði ekki reistur nema stofnkostnaður sé að miklu leyti reiddur fram af hinu opinbera. Nýr þjóðarleikvangur kom fyrst í alvöru umræðu haustið 2015 þegar KSÍ gerði forhagkvæmniskönnun. Í apríl ári síðar var gerð viðskiptaáætlun og í framhaldinu var ráðist í enn frekari áætlanagerð og ítarlega þarfagreiningu, einkum með tilliti til framkvæmdakostnaðar. Vorið 2017 var ráðist í lokaáfanga hagkvæmniathugunar þar sem meðal annars voru skoðuð mismunandi form eignarhalds og fjármögnunar. Leitað var til innlendra og erlendra sérfræðinga en tekið var sérstaklega fram að þeir erlendu ættu það sameiginlegt að hafa komið að uppbyggingu fjölda leikvanga.Lýsing við innkomu á völlinn (utan girðingar) og nánasta umhverfi er ófullnægjandi. Þá eru aðgangshlið ekki til staðar.fréttablaðið/Andri MarinóEftir alla þessa vinnu var mælst til þess að halda áfram með verkefnið. Ráðgjafarsviði KPMG var falið það hlutverk að greina og áhættumeta rekstrar- og samfélagslegar forsendur. Skýrsla KPMG byggir meðal annars á gögnum og upplýsingum frá verkkaupum, stjórnendum Borgarbrags, Pétri Marteinssyni og Guðmundi Kristjáni Jónssyni og ráðgjöfum ráðgjafarfyrirtækisins Lagardère Sports, sem rekur um 80 leikvanga víðs vegar um heim. Í skýrslu sinni telur KPMG að ýmsum áætlunum og gögnum sem lögð hafa verið fram sé nokkuð ábótavant en viðskiptalíkanið virðist trúverðugt. Þó er bent á að Lagardère Sports gæti haft mikilla hagsmuni að gæta verði verkefnið að veruleika sem kalli á skynsamlega rýni helstu hagsmunaaðila í ráðleggingar fyrirtækisins. Í fyrirhugaðri tímalínu um nýjan völl er gert ráð fyrir að nýr Þjóðarleikvangur verði reistur árið 2021. Laugardalsvöllur tekur tæplega 9.800 manns í númeruð sæti, og þegar hann fyllist eru tekjur af seldum miðum nálægt 30 milljónum króna. Síðastliðin fimm ár hefur nánast alltaf verið uppselt á keppnisleiki A-liðs karla. Þrátt fyrir að þetta séu síðustu leikir fyrir HM er nóg til af miðum, bæði á Noregsleikinn og leikinn gegn Gana, hvort sem það er veðrið eða verðið sem veldur, en fjögurra manna fjölskylda þarf að reiða fram 14-30.000 krónur.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Sjá meira