Amma kyrkti gaupu til dauða Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. júní 2018 07:21 Talið er að gaupan hafi verið með hundaæði. Alamy
Bandarísk kona kyrkti gaupu til dauða eftir að dýrið hafði ráðist á hana fyrir utan heimili hennar í Georgíu fyrr í þessum mánuði. Fram kemur í þarlendum miðlum að gaupan hafi stokkið á konuna er hún reyndi að taka mynd af dýrinu. „Geltið í hundi nágrannans vakti athygli mína,“ er haft eftir DeDe Phillips á vef Athens-Banner Herald. „Þá sá ég köttinn og tók mynd. Hann tók tvö skref og var því næst ofan á mér,“ segir Phillips sem telur að gaupan hafi reynt að ráðast á andlit hennar. Hún segist hafa nokkra reynslu af gaupum. Pabbi hennar hafi um árabil fangað dýrin, sem eru ekki sjaldséð sjón í sýslunni. Því hafi hún vitað hvernig best væri að kljást við gaupuna. „Ég hugsaði með mér: „Ekki í dag.“ Það var ekki fræðilegur möguleiki að ég myndi deyja,“ er haft eftir Phillips. Hún greip um háls gaupunnar og sleppti ekki sama hvað dýrið streittist á móti. Hún segist ekki hafa þorað að kalla á hjálp því að fimm ára gamalt barnabarn hennar var inni í húsinu. Þegar gaupan lyppaðist að lokum niður hafi hún hins vegar beðið dóttur sína um að hringja á neyðarlínuna. Þá hafi sonur hennar komið hlaupandi með byssu en Phillips segist hafa bannað honum að hleypa af, því dýrið lá enn ofan á henni. Sonurinn hafi þá náð í hníf og stungið gaupuna fjórum til fimm sinnum. Phillips telur hins vegar nokkuð ljóst að dýrið hafi verið dautt áður en það var stungið. Gaupan er sögð hafa brotið fingur Phillips, klórað hana og bitið í hendur, bringu og fætur. Óttast var að gaupan hafi þjáðst af hundaæði og var Philipps því sprautuð með mótefni á slysadeild. Ekki er gert ráð fyrir öðru en að konan muni ná sér að fullu.
Bandaríkin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira