Stór skjálfti í Japan Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. júní 2018 06:29 Almenningssamgöngur fóru úr skorðum. Vísir/afp
Hið minnsta þrír eru látnir og rúmlega 200 slasaðir eftir að skjálfti af stærðinni 6.1 reið yfir Osakaborg í Japan. Flugvöllum var lokað, almenningssamgöngur fóru úr skorðum og framleiðsla í verksmiðjum borgarinnar, þar með talið hjá stórfyrirtækjum á borð við Panasonic og Daihatsu, stöðvaðist í nokkrar klukkustundir eftir skjálftann. Þrátt fyrir það er ekki talið að skjálftinn hafi haft teljandi áhrif á kjarnorkuver eða framkallað flóðbylgju. Því eru engar líkur taldar á að skjálftinn hafi orsakað hamfarir á borð við þær sem áttu sér stað í Fukushima árið 2011. Meðal hinna látnu var níu ára stúlka sem varð undir vegg í skólanum sínum. Tveir eldri menn létu lífið sömuleiðis, annar þeirra er á vef breska ríkisútvarpsins sagður hafa orðið undir bókahillu. Þá er fjöldi fólks sagður hafa festst í lyftum, vegir skemmst og vatnslagnir rofnað. Áætlað er að um 170 þúsund heimili séu rafmagnslaus eftir skjálftann og að 100 þúsund hús séu að sama skapi gaslaus. Spáð er rigningu næstu daga í og við Osaka og óttast veðurfræðingar að bleytan kunni að leiða til skriðufalls og jarðvegshruns.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira