Grunaður um morð á átta nýburum Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. júlí 2018 10:26 Heilbriðgisstarfsmaðurinn starfaði á Countess of Chester-sjúkrahúsinu. BBC
Breskur heilbrigðisstarfsmaður hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa myrt átta börn við störf sín. Þá er hann jafnframt sagður hafa reynt að myrða sex nýbura til viðbótar. Haft er eftir lögreglunni á vef breska ríkisútvarpsins að handtakan sé gríðarstórt skref í rannsókn málsins. Lögreglumenn hafa síðustu misseri reynt að varpa ljósi á andlát 17 barna á Countess of Chester-sjúkrahúsinu á eins árs tímabili, frá marsmánuði ársins 2015 fram í júlí árið 2016. Þar að auki er talið að 15 börn hafi verið nær dauða en lífi áður en öðrum heilbrigðisstarfsmönnum tókst að hjúkra þeim aftur til heilsu. Lögreglan vill lítið gefa upp um rannsóknina á þessari stundu, enda er hún sögð flókin og viðkvæm. Talsmaður lögreglunnar segir þó að hún sé í forgangi hjá embættinu og að það reyni að gera allt sem í valdi þess stendur til að komast til botns í málinu. Hann bætir við að ómögulegt sé að segja til um hvenær niðurstaðna verði að vænta eða hvort hinn handtekni heilbrigðisstarfsmaður verði ákærður fyrir morðin. Forstöðumaður sjúkrahússins segir í samtali við breska ríkisútvarpið að það hafi ekki verið auðveld ákvörðun að kalla eftir lögreglurannsókn. Engu að síður hafi það verið talið nauðsynlegt til að svipta hulunni af þessu hræðilega máli. Hann segir að fæðingadeildin sé örugg í dag og opin öllum konum.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira