Lengstu neglur í heimi fengu að fjúka Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. júlí 2018 07:12 Neglurnar eru samtals um 9 metrar að lengd. GWR
Indverjinn Shridhar Chillal gafst í gær upp á ógnarlöngum nöglunum sem hann hefur látið vaxa undanfarin 66 ár. Í Ripley’s Believe It or Not!-safninu í New York lét hann fagmann, vopnaðan grímu og rafdrifnum klippum, fjarlægja allar neglurnar á vinstri höndinni - sem samtals voru næstum 9 metrar að lengd. Neglurnar komu Chillal í heimsmetabók Guinness fyrir lengstu neglur sem nokkur maður hefur látið vaxa á annarri hendi. Sá indverski byrjaði að safna nöglunum þegar hann var 14 ára gamall eftir að hafa óvart brotið mjög langa nögl kennarans síns. Chillal segir að kennarinn hafi hreytt í hann að „hann vissi ekki hvað það væri erfitt að láta sér vaxa svona langar neglur nema hann myndi prófa það sjálfur.“ Svo það er það sem Chillal ákvað að gera. Hann hefur áður lýst því hvað naglaflóðið hefur gert líf hans flókið. Neglurnar séu mjög viðkvæmar og óttast hann alltaf að brjóta þær í svefni. Því hafi hann alltaf þurft að vakna á klukkutíma fresti til að færa höndina. Þá hafi neglurnar oft valdið honum miklum sársauka. Þær hafi þó haft sína kosti líka. „Ég hef aldrei þurft að bíða í röð,“ segir Chillal kíminn í samtali við heimsmetabókina. Myndband frá naglaklippingarathöfninni má sjá hér að neðan. Neglurnar munu framvegis verða til sýnis á fyrrnefndu Ripley’s Believe It or Not!-safni í New York.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira