Þurrt í höfuðborginni á morgun Stefán Ó. Jónsson skrifar 25. júlí 2018 07:39 Hver veit nema fólk safnist saman á Austuvelli á morgun. vísir/Daníel
Veðurstofan útilokar ekki að allur morgundagurinn gæti verið þurr á suðvesturhorninu. Það verður að teljast til stórtíðinda ef tekið er mið af veðurfarinu á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Það verði hins vegar suðvestlæg átt í dag og víða skúrir, þó síst norðantil þar sem jafnframt verður hlýjast. Hitinn verður að jafnaði á bilinu 8 til 16 stig í dag. Það snýst svo í hvassa austlæga átt við suðausturströndina í fyrramálið. Þar má einnig gera ráð fyrir einhverri rigningu. Það muni hins vegar lægja þegar líður á daginn og draga úr vætu. Að sama skapi gæti verið úrkomulaust á Suðvesturlandi allan morgundaginn sem fyrr segir. Þar að auki verður þar að finna hæstu hitatölurnar þann daginn og gæti hitinn numið 18 gráðum þegar mest lætur. Það er svo útlit fyrir „rólegheita dag“ á föstudag og verðu víða nokkuð hlýtt, síst þó á norðanverðum Vestfjörðum. Ný lægð mun svo gera sig heimakomna á laugardag með vætu um allt land.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag:Gengur í austan- og norðaustan 8-18 m/s, hvassast við SA-ströndina. Talsverð rigning S- og A-til, annars úrkomuminna, en dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast V-lands. Á föstudag:Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og rigning á köflum við A-ströndina og á Vestfjörðum framan af degi, en annars þurrt að kalla. Hiti 8 til 18 stig, svalast á Vestfjörðum. Á laugardag:Austlæg átt og og rigning, en milt veður. Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:Útlit fyrir austlægar áttir með vætu í flestum landshlutum, en fremur hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira