165 laxar komnir af svæði 1-2 í Stóru Laxá Karl Lúðvíksson skrifar 23. júlí 2018 10:00
Það er misjafn tíminn sem er bestur í laxveiðiánum en sumar árnar eiga það til að taka ansi góða spretti þegar líður á tímabilið. Ein af þessum ám er Stóra Laxá í Hreppum en það er orðið ansi vel þekkt að þegar fyrstu haustrigningar demda sér í ána og hún tekur að hækka eftir t.d. vatnslítil sumur þá getur haustveiðin í henni verið ævintýraleg. Dæmi eru um að fjórar stangir hafi tekið 100 laxa á tveimur dögum og að í þeim afla hafi um helmingur verið tveggja ára lax. Stóra Laxá er sein til og það er kannski ekki furða því hún er langt inní landi og laxinn þarf að fara ansi langa leið í hana. Þrátt fyrir að hún sé af mörgum kölluð dæmigerð síðsumarsá er veiðin í henni búin að vera ágæt á svæðum I-II en þar eru komnir 165 laxar á land. Svæði III sem er lang rólegasta svæðið hefur gefið aðeins 12 laxa og svæði IV hefur gefið 44 laxa. Það skal þó ekki skilja þessar tölur öðruvísi en svo að um byrjun sé að ræða því besti tíminn er framundan í henni.
Mest lesið Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Fyrsti lax sumarsins kominn á land í Ytri Rangá Veiði Miklir möguleikar í vetrarveiði á Íslandi Veiði Fjórir í framboði fyrir þrjú sæti í stjórn SVFR Veiði 15 punda urriði við opnun Veiðivatna Veiði Skutulsveiðar á eldislaxi eins og brandari Veiði Fín byrjun í Straumfjarðará Veiði 1-2 metra þykkur ís á mörgum vötnum norðan- og vestanlands Veiði Augljóslega mikil andstaða hjá veiðimönnum við sjókvíaeldi Veiði Lax að veiðast í Hítará þrátt fyrir erfið skilyrði Veiði