Jóhannes lofar Pétur og Laugaland Samúel Karl Ólason skrifar 9. ágúst 2018 18:31 Jóhannes Kr. Kristjánsson. Vísir/Ernir
Jóhannes Kr. Kristjánsson skrifaði í dag færslu á Facebook þar sem hann fór fögrum orðum um meðferðarheimilið Laugaland í Eyjafirði og forstöðumann þess Pétur Broddason. Jóhannes sagði frá því að dóttir hans heitin Sigrún Mjöll hefði útskrifast frá Laugalandi fyrir tíu árum. Eftir það hefði Pétur skipað stóran sess í lífi hennar og hún hefði reglulega haft samband við hann. „Ég man sérstaklega eftir því þegar ég fór með henni á snjóbretti í Bláfjöllum að þá bað hún mig um að taka mynd af sér í snjóbrettagallanum með snjóbrettið og senda Pétri myndina. Hún vildi sýna honum að allt gengi vel en á Laugalandi lærði hún á snjóbretti og fór ásamt hinum stúlkunum og starfsfólki í Hlíðarfjall hvenær sem færi gafst. Sissa lærði ótalmargt á Laugalandi og utanumhaldið um hana var ótrúlega gott. Hún grét þegar hún útskrifaðist og sagðist óska þess að geta verið áfram á þessum góða stað og langaði að sækja um skólavist í VMA,“ skrifaði Jóhannes. Tilefni skrifanna er frétt Fréttablaðsins um að Pétur hefði tekið sér 42 milljónir í arð út úr rekstrarfélagi meðferðarheimilisins á síðustu árum. Laugaland er einkarekið meðferðarheimili sem starfar samkvæmt rekstrarsamningi og undir yfirstjórn Velferðarráðuneytisins, sem sinnir jafnframt eftirliti með heimilinu.Sjá einnig: Tugmilljóna arður af meðferð fyrir börnJóhannes sagðist hafa verið í sambandi við Pétur frá því Sigrún hafi verið í meðferð hjá honum og hann beri mikla virðingu fyrir honum og mikilvægu starfi hans. „Ég veit hvað starfið skiptir hann miklu máli og ég veit að hann stendur vaktina alla daga ársins. Pétur og starfsfólkið á Laugalandi taka við stúlkum sem koma oftar en ekki úr hrikalegum aðstæðum og eru í hrikalegu ástandi. Allt starfið á Laugalandi gengur út á það að koma stúlkunum á rétta braut og hjálpa þeim að takast á við erfiðar upplifanir úr neyslunni eða æskunni.“ Þá skrifaði Jóhannes að Pétur og starfsfólk hans hefðu bjargað tugum stúlkna í gegnum tíðina. „Það birtast ekki fréttir um alla sigrana sem unnir eru á Laugalandi þar sem allt gengur út á að bjarga ungum stúlkum. Ef settur er verðmiði á eina stúlku sem útskrifast af Laugalandi og fer ekki aftur í neyslu vímuefna þá er fjárhagslegur ávinningur samfélagsins mörg hundruð milljónir króna. Hver einasti einstaklingur sem er í neyslu vímuefna kostar samfélagið mikla peninga í formi afbrota, í heilbrigðiskerfinu, löggæslu, dómsmálum, tryggingamálum, fangelsisvist og svo framvegis. Ávinningurinn fyrir samfélagið er því mikill að meðferð unga fólksins gangi vel og að viðkomandi leiðist ekki aftur í neyslu vímuefna.“ Enn fremur sagði Jóhannes að hann fagnaði því að Pétri hefði tekist að reka Laugaland réttu megin við núllið og sagðist hann fagna því að Pétur gæti greitt sér arð sem næmi rúmlega 300 þúsund krónum á mánuði fyrir skatt á síðustu tíu árum. „Hagnaður samfélagsins er svo miklu meiri vegna hans starfa. Og þarna úti eru fjölskyldur sem eiga Pétri og hans fólki allt að þakka. Það er ómetanlegt.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira