„Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Lovísa Arnardóttir skrifar 3. nóvember 2026 08:56 Ágúst rifjar upp þegar það snjóaði á þessum tíma í fyrra. Bílar sátu fastir og umferð gekk hægt. Bylgjan og Vísir/Anton Brink Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum og umferðaröryggi hjá Verði, hvetur fólk til að fara yfir bílinn sinn og búnaðinn í honum og hversu tilbúinn hann er fyrir veturinn. Rúmt ár er síðan nýtt snjódýptarmet var slegið í Reykjavík og fjöldi bíla sat fastur dögum saman á götunum. Hann segir góð dekk, góða sköfu og kúst nauðsynleg fyrir veturinn. „
Það kyngdi niður snjó og marga daga í eftir voru aðstæður erfiðar,“ segir Ágúst og að bílar hafi verið fastir og það megi að mestu rekja til þess að fólk var ekki á nógu góðum vetrardekkjum eða jafnvel á sumardekkjum. Hann hvetur fólk til að finna vetrardekkin og panta sér tíma á bílaverkstæði tímanlega því það geti verið bið. Rætt var við Ágúst í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Það sé hlýtt núna og fólk hugsi eflaust með sér að það þurfi ekki að skipta strax en Ágúst segir gott að hafa tímann með sér. Það þurfi að skoða dekkin vel og fyrir vetrarfærð þurfi mynsturdýptin að vera í það minnsta þrír millimetrar samkvæmt lögum. „Ef en við erum núna með dekk sem eru þrír millimetrar og við ætlum að athuga hvort það sleppi ekki og dugi. Þrír millimetrar í nóvember verða ekki þrír millimetrar í apríl,“ segir Ágúst og hvetur fólk til að setja standardinn aðeins hærra. „Það er stundum talað um fjóra til fimm millimetra frekar að vetri.“ Hann segir að ef fólk er í vafa geti sérfræðingar á bílaverkstæðum skoðað dekkin. Hann segir til dæmis að munurinn á hemlunarvegalengd á sumardekkjum og vetrardekkjum geti verið allt að tvöfaldur í snjó. Dekk miðað við aðstæður „Á fimmtíu kílómetra hraða í þjöppuðum snjó sem er orðinn háll, þá eru vetrardekkin að stoppa á 25 til 30 metrum en sumardekkin hafa verið að mælast á allt að 55 til 60 metra. Þá erum við að við á fimmtíu kílómetra hraða að fara yfir Laugardalslaugina og gott betur.“ Hann segir að í glærustu hálkunni sé enn munur á góðum vetrardekkjum og nagladekkjum. „Við tölum um hvert ertu að fara og hvernig aðstæðurnar eru á þínu svæði,“ segir hann og að þó svo að flestir komist upp með að vera á góðum vetrardekkjum þá þurfi fólk sem býr á svæðum þar sem er snjóþungt, mikil hálka og léleg vetrarþjónusta að vera á annars konar dekkjum, með nöglum. Ágúst segir góð vetrardekk eiga að duga allt að þrjá vetur en það fari eftir því hversu mikið fólk ekur og hversu þungur bíllinn er. Spurður hvort enn sé verið að nota keðjur segir Ágúst að flutningabílstjórar noti þær yfir heiðarnar. Snjómoksturstæki séu oft á keðjum og þegar það er snjóþungt sé gott að nota þær og eiga þær í mjög erfiðum aðstæðum. „Það má almennt,“ segir hann um hvort það megi og að í umferðarlögum sé talað um keðjur og nagla og að fólk aki miðað við aðstæður og að dekkin séu nógu góð fyrir þær aðstæður sem fólk er að aka við. Póstkort á rúðunni dugi ekki til Ágúst segir rúðusköfurnar líka þurfa að vera í lagi og til bílsins. Það sé ekki nóg að skafa „eitt lítið póstkort“ á framrúðunni og í rigningu og snjókomu sjái fólk ekki gangandi og hjólandi nægilega vel. „Þú sérð ekki hvert þú ert að fara, það er grundvallaratriði í umferðinni.“ Það þarf að skafa rúfur og sópa snjó af þaki segir Ágúst. Vísir/Anton Brink Annað sem Ágúst segir hættulegt sé snjór á þakinu sem gæti runnið yfir rúðuna og fólk missi útsýni sitt. „Kústur og skafa.“ Ágúst hvetur fólk til að skoða dekkin, panta tíma á bílaverkstæði og ekki bíða eftir fyrsta snjónum.
Umferð Umferðaröryggi Bítið Tengdar fréttir „Þetta er flókið verkefni og ekki hægt að ráða við allar aðstæður“ Reykjavíkurborg og Vegagerðin vinna nú að því að rótargreina það ástand sem kom til í þarsíðustu viku þegar um 40 sentímetrum af snjó kyngdi niður á rúmum sólarhring á suðvesturhorni landsins. Einar Pálsson, forstöðumaður vegaþjónustu hjá Vegagerðinni, er ekki viss um hvort eitthvað hefði verið hægt að gera öðruvísi en segir Vegagerðina alltaf vilja gera betur. 7. nóvember 2025 13:41 Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gular veðurviðvaranir eru í gildi vegna snjókomu á suðvesturhorninu. Veðurfræðingur spáir talsverðri snjókomu sem geti náð fjörutíu sentimetra dýpt. 29. nóvember 2025 15:42 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Sjá meira
„Þetta er flókið verkefni og ekki hægt að ráða við allar aðstæður“ Reykjavíkurborg og Vegagerðin vinna nú að því að rótargreina það ástand sem kom til í þarsíðustu viku þegar um 40 sentímetrum af snjó kyngdi niður á rúmum sólarhring á suðvesturhorni landsins. Einar Pálsson, forstöðumaður vegaþjónustu hjá Vegagerðinni, er ekki viss um hvort eitthvað hefði verið hægt að gera öðruvísi en segir Vegagerðina alltaf vilja gera betur. 7. nóvember 2025 13:41
Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gular veðurviðvaranir eru í gildi vegna snjókomu á suðvesturhorninu. Veðurfræðingur spáir talsverðri snjókomu sem geti náð fjörutíu sentimetra dýpt. 29. nóvember 2025 15:42