Umferð

Fréttamynd

Strætó fór út­af á Holta­vörðu­heiði

Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum.

Innlent
Fréttamynd

Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt

Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Hafnarfjarðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar.

Innlent
Fréttamynd

Rúta lenti utan vegar

Rúta á vegum Reykjavík Excursions sem var á leið til Reykjavíkur lenti utan vegar nærri Litlu kaffistofunni síðdegis í dag. Engum varð meint af og er búið að ferja farþega rútunnar í borgina. Þetta segir Björn Ragnarsson, forstjóri fyrirtækisins, sem lýsir erfiðum akstursskilyrðum á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs

Ofankoma er mikil þessa stundina á höfuðborgarsvæðinu og þau sem hafa tök á því eru hvött til að fara fyrr heim úr vinnu. Gul veðurviðvörun er í gildi og töluverðar seinkanir eru á strætó.

Veður
Fréttamynd

„Svo sprakk rúðan og gler­brot út um allt í bílnum“

Ágúst Elí Ólafsson var hætt kominn í gær á Miklubraut þar sem hann var á leið heim úr vinnu en trjádrumbi var kastað í rúðuna hans af göngubrú við Skeifuna. Hann segist þakklátur fyrir að ekki hafi farið verr en biðlar til foreldra um að brýna fyrir börnum sínum hve hættuleg slík uppátæki séu. Hann tilkynnti málið til lögreglu, enda heyrði hann af öðru nýlegu dæmi við sömu brúna.

Innlent
Fréttamynd

Á sjötta hundrað lentu í vand­ræðum

Farþegar í á sjötta hundrað farartækja lentu í vandræðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi vegna skafrennings. Það var samvinnuverk að koma bílunum aftur af stað sem björgunarsveitir, Vegagerðin og bændur á svæðinu tóku þátt í.

Innlent
Fréttamynd

Vara við því að færð spillist í kvöld

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, segir útlit fyrir að færð muni spillast í kvöld. Syðst á landinu stefni í hríðarveður og skafrenning og að ekki muni rofa til að gagni fyrr en upp úr hádegi á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Verra að vera í bíl en gangandi í svif­rykinu

Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 

Innlent
Fréttamynd

„Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“

Íbúi í Reykjavík segir óboðlegt að gefast upp fyrir mikilli svifryksmengun sem mælst hafi á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Hann kallar eftir viðbrögðum frá þingmönnum og borgarfulltrúum og segir að fólk hljóti að setja spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt.

Innlent
Fréttamynd

Allt rykbindiefni búið

Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi.

Innlent
Fréttamynd

Hjólar í borgina: Hafi engan á­huga á at­kvæðum hjólreiðafólks

Stofnleið hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu í vesturbæ Reykjavíkur sem lokað var fyrir þremur árum síðan vegna framkvæmda er enn lokað. Formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segir augljóst að bílstjórar og verktakar séu í forgangi hjá borginni en ekki hjólreiðafólk. Þar séu atkvæði og peningar fyrir stjórnmálamenn í aðdraganda kosninga.

Innlent
Fréttamynd

Snjór á Hellisheiðinni

Snjóþekja er á Hellisheiði, Mosfellsheiði og á Kjósarskarði. Hálkublettir eru á Sandskeiði og í Þrengslum.

Innlent
Fréttamynd

Á­rekstur í Urriðaholti

Árekstur varð á gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Kauptúns í Garðabæ um klukkan 11 í morgun. Tveir eru sagðir slasaðir en þó er talið að um minni háttar áverka sé að ræða.

Innlent
Fréttamynd

„Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“

„Ég hélt að þetta yrði borðliggjandi dæmi, þetta væri bara formsatriði. Þetta var eins og að vera sleginn niður aftur,” segir Sigurður Guðmundsson sem varð fyrir alvarlegu slysi í göngutúr með hundinn sinn þann 26. nóvember árið 2024. Ökumaður keyrði á Sigurð og hundinn, með þeim afleiðingum að Sigurður hlaut lífshættulega fjöláverka, þar á meðal heilablæðingu og alvarlegan dreifðan heilaáverka.

Innlent
Fréttamynd

Vega­gerðin bæti hring­veginn eftir að grjót banaði ferða­manni

Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin vinni þegar í stað að úrbótum á hringveginum við Steinafjall á Suðurlandi eftir að erlend ferðakona lést þegar stærðarinnar grjót féll á bíl hennar. Líkur á slíkum slysum eru sagðar hafa aukist vegna þyngri umferðar um veginn.

Innlent
Fréttamynd

Keyrði á móti um­ferð á Reykja­nes­braut

Fólksbíl var keyrt á móti umferð á Reykjanesbraut við álverið í Straumsvík nú á níunda tímanum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu varð jafnframt árekstur á brautinni í morgun þar sem rúta ók utan í fólksbíl og keyrði síðan af vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Al­vöru að­för að einka­bílnum

Að bæta við akreinum til að laga umferð í Reykjavík er eins og að kaupa sér stærri buxur til þess að léttast. Þegar við breikkum vegi hugsum við: „Meira pláss, minni umferð.“ En umferð virkar ekki þannig. Hún er ekki vatn í rörum. Hún er fólk.

Skoðun
Fréttamynd

Barn flutt á slysa­deild með á­verka eftir flug­elda

Lögregla á Stöð 4 var kölluð til í vegna flugeldaslyss í gær. Fram kemur í dagbók lögreglunnar hafði þar barn slasað sig og verið sárþjáð þegar lögregla kom á vettvang. Áverkar voru á hönd barnsins sem fært var í sjúkrabifreið og á bráðamóttöku til frekari skoðunar.

Innlent
Fréttamynd

Miklar tafir á Hellis­heiði vegna slyss

Miklar umferðartafir urðu á Hellisheiði vegna umferðarslyss tveggja bíla við gatnamót Suðurlandsvegar og Þrengslavegar. Tveir voru í hvorum bíl og enginn var fluttur á sjúkrahús eða slasaðist alvarlega. 

Innlent