Umferð
1 2 3 4 5 6 … 22 ›
Strætó fór útaf á Holtavörðuheiði Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum. Innlent 26.2.2026 23:09
Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði hefur verið lokað. Auk þess er búið að loka veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna snjóflóðahættu. Innlent 26.2.2026 22:08
Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Hafnarfjarðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar. Innlent 26.2.2026 12:02
Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Vegfarandi segir glæfralegan akstur ökumanns snjóruðningstækis hafa valdið skemmdum á bíl hans á Hafnarfjarðarvegi. Mikil hætta hafi verið á ferðum og hann verið viss um að framrúðan myndi springa. Þá hafi fleiri ökumenn greint frá tjóni. Innlent 26.2.2026 00:07
Rúta lenti utan vegar Rúta á vegum Reykjavík Excursions sem var á leið til Reykjavíkur lenti utan vegar nærri Litlu kaffistofunni síðdegis í dag. Engum varð meint af og er búið að ferja farþega rútunnar í borgina. Þetta segir Björn Ragnarsson, forstjóri fyrirtækisins, sem lýsir erfiðum akstursskilyrðum á svæðinu. Innlent 25.2.2026 18:47
Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Ofankoma er mikil þessa stundina á höfuðborgarsvæðinu og þau sem hafa tök á því eru hvött til að fara fyrr heim úr vinnu. Gul veðurviðvörun er í gildi og töluverðar seinkanir eru á strætó. Veður 25.2.2026 15:17
„Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Ágúst Elí Ólafsson var hætt kominn í gær á Miklubraut þar sem hann var á leið heim úr vinnu en trjádrumbi var kastað í rúðuna hans af göngubrú við Skeifuna. Hann segist þakklátur fyrir að ekki hafi farið verr en biðlar til foreldra um að brýna fyrir börnum sínum hve hættuleg slík uppátæki séu. Hann tilkynnti málið til lögreglu, enda heyrði hann af öðru nýlegu dæmi við sömu brúna. Innlent 24.2.2026 21:45
Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu Vegagerðin varar við snjókomu á suðvesturhorninu á morgun með krefjandi aksturskilyrðum, meðal annars í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Innlent 24.2.2026 16:05
Umferðartafir á meðan rútunni er komið burt Björgunarsveitir vinna nú að því að koma rútu sem fór út af þjóðveginum við Reynisfjall um helgina í burtu. Búast má við töfum á umferðinni næsta klukkutímann vegna þessa. Innlent 23.2.2026 17:34
Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Farþegar í á sjötta hundrað farartækja lentu í vandræðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi vegna skafrennings. Það var samvinnuverk að koma bílunum aftur af stað sem björgunarsveitir, Vegagerðin og bændur á svæðinu tóku þátt í. Innlent 22.2.2026 10:11
Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Björgunarsveitir hafa síðdegis og í kvöld aðstoðað vegfarendur sem lent hafa í vandræðum á hringveginum undir Eyjafjöllum. Veginum var á tímabili lokað vegna þess að bílar sátu fastir. Innlent 21.2.2026 18:39
Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Ökumanni brá heldur betur í brún þegar hann ætlaði að taka fram úr á vinstri akrein tvöfaldaðs Vesturlandsvegar við Grundarhverfi og bíll kom á móti honum á röngum vegarhelmingi. Innlent 21.2.2026 11:16
Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka „Hér á landi er ekkert gert,“ segir formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) í pistli um svifryksmengun sem hefur verið afar mikil undanfarnar vikur. Hann gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka. Innlent 21.2.2026 10:15
Vara við því að færð spillist í kvöld Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, segir útlit fyrir að færð muni spillast í kvöld. Syðst á landinu stefni í hríðarveður og skafrenning og að ekki muni rofa til að gagni fyrr en upp úr hádegi á morgun. Innlent 17.2.2026 09:55
Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla Hringveginum var lokað við Skóga á Suðurlandi vegna umferðarslyss. Tveir voru fluttir á Selfoss til aðhlynningar. Innlent 16.2.2026 17:39
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. Innlent 16.2.2026 13:10
„Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Íbúi í Reykjavík segir óboðlegt að gefast upp fyrir mikilli svifryksmengun sem mælst hafi á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Hann kallar eftir viðbrögðum frá þingmönnum og borgarfulltrúum og segir að fólk hljóti að setja spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt. Innlent 14.2.2026 14:20
Allt rykbindiefni búið Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi. Innlent 13.2.2026 12:01
Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Stofnleið hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu í vesturbæ Reykjavíkur sem lokað var fyrir þremur árum síðan vegna framkvæmda er enn lokað. Formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segir augljóst að bílstjórar og verktakar séu í forgangi hjá borginni en ekki hjólreiðafólk. Þar séu atkvæði og peningar fyrir stjórnmálamenn í aðdraganda kosninga. Innlent 7.2.2026 16:26
Snjór á Hellisheiðinni Snjóþekja er á Hellisheiði, Mosfellsheiði og á Kjósarskarði. Hálkublettir eru á Sandskeiði og í Þrengslum. Innlent 6.2.2026 10:08
Árekstur í Urriðaholti Árekstur varð á gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Kauptúns í Garðabæ um klukkan 11 í morgun. Tveir eru sagðir slasaðir en þó er talið að um minni háttar áverka sé að ræða. Innlent 3.2.2026 11:22
„Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ „Ég hélt að þetta yrði borðliggjandi dæmi, þetta væri bara formsatriði. Þetta var eins og að vera sleginn niður aftur,” segir Sigurður Guðmundsson sem varð fyrir alvarlegu slysi í göngutúr með hundinn sinn þann 26. nóvember árið 2024. Ökumaður keyrði á Sigurð og hundinn, með þeim afleiðingum að Sigurður hlaut lífshættulega fjöláverka, þar á meðal heilablæðingu og alvarlegan dreifðan heilaáverka. Innlent 1.2.2026 10:02
Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Vegagerðin hyggst setja upp svokallaðar grjótgrindur við Steinafjall þar sem banaslys varð í fyrra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa óskaði eftir úrbótum í nýrri skýrslu. Innlent 19.1.2026 18:41
Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin vinni þegar í stað að úrbótum á hringveginum við Steinafjall á Suðurlandi eftir að erlend ferðakona lést þegar stærðarinnar grjót féll á bíl hennar. Líkur á slíkum slysum eru sagðar hafa aukist vegna þyngri umferðar um veginn. Innlent 19.1.2026 12:11
Keyrði á móti umferð á Reykjanesbraut Fólksbíl var keyrt á móti umferð á Reykjanesbraut við álverið í Straumsvík nú á níunda tímanum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu varð jafnframt árekstur á brautinni í morgun þar sem rúta ók utan í fólksbíl og keyrði síðan af vettvangi. Innlent 15.1.2026 09:58
Alvöru aðför að einkabílnum Að bæta við akreinum til að laga umferð í Reykjavík er eins og að kaupa sér stærri buxur til þess að léttast. Þegar við breikkum vegi hugsum við: „Meira pláss, minni umferð.“ En umferð virkar ekki þannig. Hún er ekki vatn í rörum. Hún er fólk. Skoðun 14.1.2026 07:30
Óvissustig á vegi milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns Óvissustig verður á veginum milli Kirkjubæjarklausturs og Jökulsárlóns frá klukkan 15:00 í dag og fram eftir morgundeginum 12. janúar. Búast má við að vegurinn geti lokað með skömmum fyrirvara samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. Veður 11.1.2026 12:05
Barn flutt á slysadeild með áverka eftir flugelda Lögregla á Stöð 4 var kölluð til í vegna flugeldaslyss í gær. Fram kemur í dagbók lögreglunnar hafði þar barn slasað sig og verið sárþjáð þegar lögregla kom á vettvang. Áverkar voru á hönd barnsins sem fært var í sjúkrabifreið og á bráðamóttöku til frekari skoðunar. Innlent 11.1.2026 07:33
Seinka læknisskoðun fyrir endurnýjun ökuskírteina Innviðaráðherra hyggst breyta reglum um ökuskírteini svo ökumenn þurfi ekki að gangast undir læknisskoðun á grundvelli aldurs fyrr en það verður 75 ára gamalt. Innlent 10.1.2026 15:21
Miklar tafir á Hellisheiði vegna slyss Miklar umferðartafir urðu á Hellisheiði vegna umferðarslyss tveggja bíla við gatnamót Suðurlandsvegar og Þrengslavegar. Tveir voru í hvorum bíl og enginn var fluttur á sjúkrahús eða slasaðist alvarlega. Innlent 9.1.2026 18:13