Kvennalið Snæfells með þrjá erlenda leikmenn í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. ágúst 2018 12:30 Angelika Kowalska. Mynd/Heimasíða Snæfells
Kvennalið Snæfells í Domino´s deildinni í körfubolta ætlar að tefla fram þremur erlendum leikmönnum á komandi tímabili og er fyrsta kvennaliðið sem tilkynnir um slíkan liðstyrk. Snæfell sagði frá því á heimasíðu sinni að félagið væri búið að semja við hina pólsku Angeliku Kowalska. Áður hafði félagið gengið frá samningum við hina bandarísku Kristen McCarthy og hina króatísku Katarinu Matijevic. Angelika Kowalska er 26 ára framherji frá Póllandi sem hefur spilað með U-16,-18 og-20 ára landsliðum Póllands. Angelika hefur ennfremur spilað nokkur tímabil í efstu deild Póllands en á síðasta tímabili spilaði Angelika í Frakklandi með Basket-Ball Cournon d'Auvergne. Kristen McCarthy þekkja flestir en hún varð Íslandsmeistari með Snæfelli tímabili 2014-15 og spilaði einnig með liðinu síðasta vetur. McCarthy mun þjálfa yngri flokka ásamt því að leika með Snæfell. McCarthy var með 29,6 stig, 13,4 fráköst og 4,1 stoðsendingar að meðaltali á síðustu leiktíð. Katarina Matijevic er 23 ára og 184 sentímetra framherji sem var á sínum tíma í yngri landsliði Króatíu. Hún hefur líka verið að spila í Austurríki. Katarina Matijevic mun einnig þjálfa yngri flokka ásamt því að leika með Snæfell. Það er ljóst á þessu að Snæfellingar ætla að gera allt til að endurheimta Íslandsbikarinn sem Snæfellskonur unnu þrjú ár í röð frá 2014 til 2016. Snæfell komst ekki í úrslitakeppnina í fyrra en fór alla leið í lokaúrslitin tímabilið á undan.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira