Ráðgjafi Trump dæmdur í fangelsi og segist hafa logið til að vernda sig og forsetann Kjartan Kjartansson skrifar 7. september 2018 21:33 Papadopoulos þegar hann mætti í dómshús í Washington-borg í dag. Vísir/EPA
Alríkisdómari dæmdi í dag George Papadopoulos, fyrrverandi ráðgjafa forsetaframboðs Donalds Trump í utanríkismálum, í fjórtán daga fangelsi fyrir að hafa logið að fulltrúum alríkislögreglunnar FBI um samskipti sín við rússneska útsendara fyrir forsetakosningarnar árið 2016. Papadopoulos segist hafa logið til að vernda sjálfan sig og Trump forseta. Saksóknarar fullyrtu að Papadopoulos hefði ítrekað logið að FBI-mönnum í viðtali í janúar í fyrra. Lygar hans hafi hindrað rannsóknina á mikilvægu augnabliki hennar. Þær hafi meðal annars orðið til þess að FBI tókst ekki að handtaka prófessor í London sem er grunaður um að vera útsendari rússneskra stjórnvalda áður en hann yfirgaf Bandaríkin í febrúar í fyrra. Prófessorinn hefur ekki komið aftur til landsins síðan, að sögn New York Times. Hann er sagður hafa verið sá sem upplýsti Papadopoulos um að Rússar væru með þúsundir tölvupósta Hillary Clinton, forsetaframbjóðanda demókrata, í mars árið 2016. Papadopoulos var einnig sektaður um 9.500 dollara og skikkaður til að gegna samfélagsþjónustu í tvö hundruð klukkustundir. Þá verður hann á skilorði í eitt ár eftir að hann afplánar refsingu sína. Hann er fyrsti ráðgjafi Trump-framboðsins sem hefur hlotið refsingu í tengslum við rannsókn Roberts Mueller, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, á meintu samráði framboðsins við Rússa.Man ekki eftir að hafa rætt um tölvupóstana við aðra ráðgjafa Það var lausmælgi Papadopoulosar í maí árið 2016 sem er sögð hafa hrundið af stað Rússarannsókninni svonefndu. Hann sagði áströlskum sendiherra í London að Rússar hefðu undir höndum tölvupósta Clinton áður en það varð á allra vitorði. Eftir að hakkarar birtu tölvupósta Clinton höfðu áströlsk stjórnvöld samband við bandarísk yfirvöld og greindu þeim frá því sem Papadopoulos hafði sagt sendiherranum. Í viðtali við New York Times í vikunni, því fyrsta þar sem hann tjáir sig opinberlega um málið, sagði Papadopoulos að hann myndi ekkert eftir að hafa rætt um tölvupóstana við ástralska sendifulltrúann. Þegar FBI-fulltrúar spurðu hann út í samskipti sín við Rússa hefði hann haft áhyggjur af því hvert rannsóknin myndi leiða. „Ég vildi fjarlægja sjálfan mig eins og mikið og ég gat, og Trump sjálfan og framboðið, frá því sem var líklega ólögleg aðgerð eða hættulegar upplýsingar,“ sagði Papadopoulos við blaðið en fullyrti að hann hefði aldrei talið sig vera að gera neitt sem skaðaði hagsmuni Bandaríkjanna. Lögmaður Papadopoulos færði rök fyrir því fyrir dómi að Trump forseti hefði sjálfur skaðað rannsókn Mueller meira með stöðugum árásum sínum en skjólstæðingur sinn hefði nokkru sinni gert. Papadopoulos segist ekki hafa neina vitneskju um hvort að einhver af forsvarsmönnum Trump-framboðsins hafi lagt á ráðin með Rússum til að hafa áhrif á forsetakosningarnar. Hann minnist þess ekki að hafa sagt öðrum ráðgjöfum Trump frá tölvupóstunum sem Rússar höfðu. „Ég get aðeins talað fyrir eigin hönd og ég er að gjalda fyrir mistök mín. Ef einhver annar gerði mistök þá munu þeir líka þurfa að gjalda fyrir þau,“ segir hann. Trump forseti hefur sjálfur reynt að sverja Papadopoulos af sér. Hann sagði fréttamönnum í dag að hann myndi ekki þekkja Papadopoulos ef hann sæi hann. „Þeir náðu honum, býst ég við, fyrir nokkrar lygar,“ sagði forsetinn.
Bandaríkin Donald Trump Rússarannsóknin Tengdar fréttir Sagði Ástrala að Rússar sætu á upplýsingum um Clinton áður en það var opinbert George Papadopoulos virðist hafa vitað af tölvuárásum Rússa gegn Demókrataflokknum minnst tveimur mánuðum áður en það varð opinbert. 31. desember 2017 09:31 Þetta þarftu að vita um Rússarannsókn Mueller Rannsóknin á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum í fyrra hefur aftur ratað í kastljós fjölmiðla eftir að fyrstu ákærurnar í rannsókn bandaríska dómsmálaráðuneytisins og alríkislögreglunnar voru birtar á mánudag. 1. nóvember 2017 09:45 Mueller fer fram á 6 mánaða fangelsisdóm yfir George Papadopoulos Hinn sérstaki saksóknari Robert Mueller hefur farið fram á sex mánaða fangelsisdóm yfir George Papadopoulos, sem starfaði fyrir forsetaframboð Donalds Trump. 18. ágúst 2018 11:40 Ráðgjafi framboðs Trump hitti fulltrúa Rússa í fyrra Frekari staðfestingar eru nú að koma fram um samskipti fulltrúa framboðs Donalds Trump við rússneska embættismenn í kosningabaráttunni í fyrra. 4. nóvember 2017 09:17 Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Fleiri fréttir Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Sjá meira
Sagði Ástrala að Rússar sætu á upplýsingum um Clinton áður en það var opinbert George Papadopoulos virðist hafa vitað af tölvuárásum Rússa gegn Demókrataflokknum minnst tveimur mánuðum áður en það varð opinbert. 31. desember 2017 09:31
Þetta þarftu að vita um Rússarannsókn Mueller Rannsóknin á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum í fyrra hefur aftur ratað í kastljós fjölmiðla eftir að fyrstu ákærurnar í rannsókn bandaríska dómsmálaráðuneytisins og alríkislögreglunnar voru birtar á mánudag. 1. nóvember 2017 09:45
Mueller fer fram á 6 mánaða fangelsisdóm yfir George Papadopoulos Hinn sérstaki saksóknari Robert Mueller hefur farið fram á sex mánaða fangelsisdóm yfir George Papadopoulos, sem starfaði fyrir forsetaframboð Donalds Trump. 18. ágúst 2018 11:40
Ráðgjafi framboðs Trump hitti fulltrúa Rússa í fyrra Frekari staðfestingar eru nú að koma fram um samskipti fulltrúa framboðs Donalds Trump við rússneska embættismenn í kosningabaráttunni í fyrra. 4. nóvember 2017 09:17