Finnur Freyr nýr yfirþjálfari yngri landsliða KKÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. september 2018 11:10 Finnur Freyr Stefánsson fagnar einum af titlum sínum með KR. Vísir/Andri Marinó
Finnur Freyr Stefánsson var í dag kynntur sem nýr yfirþjálfari yngri landsliða Körfuknattleikssambands Íslands. Finnur hætti með meistaraflokk karla hjá KR í vor eftir að hafa gert liðið á Íslandsmeisturum fimm ár í röð. Enginn þjálfari hefur unnið úrslitakeppni úrvalsdeildar karla fimm ár í röð. Finnur hætti hjá KR og hefur ráðið sig í þjálfun yngri flokka hjá Val. Hann bætir nú við sig. Finnur er áfram aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins en hefur nú fengið mun meiri ábyrgð hjá KKÍ. Ráðningin var kynnt í tengslum við blaðamannafund karlalandsliðsins sem er á leiðinni til Portúgals til að hefja keppni í forkeppni undankeppni EM 2021. Finnur Freyr mun næstu þrjú árin ásamt Afreksstjóra KKÍ skipuleggja allt afreksstarf frá Úrvalsbúðum og Afreksbúðum upp U15, U16, U18 og U20 landsliðanna. Finnur Freyr tekur við að Einari Árna Jóhannsyni sem á undanförnum árum sinnt því starfi. Einar Árni hefur komið nálægt, með einum eða öðrum hætti, að landsliðsstarfi KKÍ sl. 18 ár. Framundan er skipulag fyrir landsliðsæfingar í vetur sem og mót og æfingabúðir næsta sumar í öllum aldursflokkum og hefur Finnur Freyr kynnt margar góðar hugmyndir fyrir Afreksnefnd KKÍ sem verða settar í gang strax í vetur sem og áfram smátt og smátt á næstu misserum.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Liverpool - Manchester City | Fyrsti leikurinn eftir dóm City Enski boltinn Fleiri fréttir Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Sjá meira