Heiðveig María hefur verið að undirbúa framboð sitt til formanns hjá Sjómannafélagi Íslands, eins og Vísir hefur greint skilmerkilega frá. Hún telur þar ýmislegt sem færa má til betri vegar en fyrir á fleti er Jónas Garðarsson formaður og hans menn. Nú er komið babb í bátinn. Netsíðu félagsins hefur verið breytt og ný lög kynnt sem koma í veg fyrir að Heiðveig María bjóði sig fram með sinn lista. Kjörgengir eru þeir einir sem hafa greitt félagsgjöld í þrjú ár.
„Það er eins og þetta sé sérstaklega til höfuðs mér. Ég hef aðeins borgað félagsgjöld síðan í júlí eða ágúst í fyrra. Ég tók eftir þessu í vikunni,“ segir Heiðveig María. Hún er ekki kát.

Ég er staðfastari en nokkru sinni fyrr í því að koma þessum mönnum frá. Þetta er algerlega galið og ég er móðguð.Hvað halda þeir eiginlega að ég sé? Að ég sé svona heimsk? Hvað halda þeir eiginlega að sjómenn séu? Nei, þetta verður ekki á minni vakt,“ en Vísir ræddi við Heiðveigu Maríu hvar hún var stödd úti á ballarhafi, sem kokkur Engey RE 1 og var að hafa til bita ofan í karlana.
Óvæntar breytingar á lögum kynntar á heimasíðu
Vísir greindi frá því fyrr í vikunni að meðal þess sem Heiðveig María hefur út á sitjandi stjórn að setja er erfitt aðgengi að upplýsingum. Þannig hefur hún ekki verið virt svars með fyrirspurnir sem snúa að hugsanlegu framboði; árskýrslum og samþykktum félagsins.
Telur að átt hafi verið við fundagerðarbækur
Heiðveig María er nú að fara yfir stöðuna með sérfræðingum og lögmanni sínum sem ekki velkist í vafa um að um ólöglegar breytingar sé að ræða, þá samkvæmt lögum félagsins sjálfs. Bæði þurfi að kynna slíkar breytingar félagsmönnum með skilmerkilegum hætti auk þess sem vafi leikur á um réttmæti þeirra. Heiðveig María og lögmaður hennar fengu í vikunni aðgang að fundagerðarbókum, eða ljósmyndum úr þeim en um er að ræða stílabók þar sem búið er að líma útprentuð A4 blöð. Heiðveig og lögmaður hennar, sem Vísir hefur rætt við, telja ýmislegt benda til þess að átt hafi verið við fundagerðirnar en í þeim má sjá að þetta séu lög sem samþykkt voru á aðalfundi fyrir tæpu ári. Til að mynda eru mismunandi fontar eða leturgerðir á því blaði þar sem þessi breyting er tíunduð og öðrum. „Það er alveg klárt að það hefur verið átt við þessar bækur.“
Ætlar ekki að láta þetta stoppa sig
En, hvað ætlar hún til bragðs að taka? Ætlar hún að halda sínu striki?„Já, að sjálfsögðu. Ég lít á það svo að framboðið okkar sé löglegt. Þetta eru ólöglegar lagabreytingar. Punktur. Svo kynna þeir, eftir að mitt framboð er komið fram einhverjar klikkaðar tillögur um sameiningu. Sem er ekki sameining heldur stofnun nýs félags,“ segir Heiðveig María og á vart orð í eigu sinni til að lýsa aðförunum.
Vísir náði tali af gjaldkera Sjómannafélags Íslands, sem heitir Bergur Þorkelsson. Hann sagðist ekki vilja skattyrðast við Heiðveigu Maríu á opinberum vettvangi. En, benti á að þessar lagabreytingar hafi verið samþykktar á síðasta aðalfundi, sem haldinn var í fyrra milli jóla og nýárs þegar sjómenn voru í landi. Hver sá sem áhuga hefði á störfum félagsins hefði getað mætt á þann fund.
Jónas gefur ekki að gefa kost á sér
Aðspurður kannast Bergur ekki við einhverjar miklar breytingar á heimasíðunni en hafnar því ekki að slíkar breytingar kunni að hafa verið gerðar. Þá segir hann aðspurður það liggja fyrir að Jónas Garðarsson, núverandi formaður, muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs.
Bergur segir reyndar að næstu stjórnarkosningar séu hálfgerðar málamyndakosningar.Því næsta stjórn sem kosin verður taki í raun aldrei við, samkvæmt lögum félagsins. Ekki fyrr en að ári, næsta aðalfundi 2019 og þá verði líklega sameiningahugmyndin orðin að veruleika. Þannig að ekki mun til þess koma. Tillaga þess efnis verður borin undir aðalfundinn komandi.
Víðtæk sameining sjómanna
„Þessi umræða um sameiningu er ekki ný af nálinni. En þetta er ný nálgun, að stofna nýtt félag sem öll þessi félög ganga inní. Þar verður algerlega ný stjórn, nýir menn við stjórnvölinn. Sjómenn ráða sínum málum en við gamla settið förum að gera eitthvað annað.“Bergur segir að unnið hafi verið að þeirra sameiningu lengi, löngu áður en til framboðs Heiðveigar Maríu kom. En þar er verið að ræða um sameiningu fimm félaga: Jötunn í Vestmannaeyjum, Sjómannafélag Grindavíkur, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Hafnarfjarðar – allt eru þetta hrein fiskimannafélög og Sjómannafélag Íslands en þar eru einnig farmenn, Gæslan, Hafró og ferjumenn.