Rosalegar tölur í framlengdum leik í Stykkishólmi og Stjarnan skellti Íslandsmeisturunum Anton Ingi Leifsson skrifar 24. október 2018 21:29 Kristen var mögnuð í kvöld. vísir/ernir
Heil umferð fór fram í Dominos-deild kvenna. Mesta spennan var í Stykkishólmi þar sem grannaslagur Snæfells og Skallagríms fór í framlengingu. Þriggja stiga karfa Kristen Denis McCarthy rúmri mínútu fyrir leikslok tryggði heimastúlkum í Snæfell framlengingu en staðan var 70-70 eftir venjulegan leiktíma. Í framlengingunni voru heimastúlkur sterkari og unnu að lokum þriggja stiga sigur, 81-78, eftir ævintýralega spennu undir lokin. McCarthy var stigahæst hjá heimastúlkum með 42 stig. Mögnuð frammistaða auk þess að taka 24 fráköst. Hún gaf einnig átta stoðsendingar. Magnaður leikur hjá henni. Í liði Skallagríms var það Shequila Joseph sem var stigahæst. Hún skoraði 22 stig og tók fimmtán fráköst en næst kom Bryesha Blair með nítján stig. Stjarnan gerði sér lítið fyrir og skellti Íslandsmeisturum Hauka, 61-58, en frábær þriðji leikhluti sem Stjarnan vann 23-13 steig stórt skref í átt að sigrinum. Einu sinni sem oftar var það Danielle Rodriguez sem var stigahæst en hún skoraði 36 stig. Næst kom Bríet Sif Hinriksdóttir með níu stig. LeLe Hardy skoraði fjórtán stig og tók fimmtán fráköst en Þóra Kristín Jónsdóttir, fyrirliði Hauka, skoraði þrettán stig. Keflavík vann svo átta stiga sigur á Val, 77-69, en sigurinn var aldrei í hættu. Munurinn var lengst af mun meiri en lokatölurnar gáfu til að kynna. Brittanny Dinkins var stigahæst hjá Keflavík með 27 stig en næst kom Embla Kristínardóttir með tíu stig. Hjá Val voru það Hallveig Jónsdóttir og Brooke Johnson sem voru stigahæstar með þrettán stig. Snæfell og KR eru á toppnum með átta stig en þar á eftir fylgja Keflavík og Stjarnan með sex stig. Haukar, Valur og Skallagrímur eru með fjögur stig. Breiðablik er svo á botninum án stiga.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira