Körfuboltakvöld um Ragnheiði: Hún er rosalegt efni Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. nóvember 2018 12:45 S2 Sport
Breiðablik er enn ekki komið með sigur í Domino's deild kvenna í körfubolta. Liðið hefur þó verið inni í flestum leikjum sínum og eru margar ungar og efnilegar stúlkur í liði Blika. Ein þeirra er Ragnheiður Björk Einarsdóttir sem lék stórt hlutverk í liði Blika í 78-85 tapi fyrir Keflavík í vikunni. Hún þurfti að stíga upp í leiknum þar sem Isabella Ósk Sigurðardóttir meiddist á dögunum. „Þegar manneskjan sem er fyrir framan þig í róteringunni dettur út þá er það bara tækifæri og þarna er hún bara að grípa gæsina,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson í Domino's Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport. „Sjáðu jafnvægið og staðsetningar hjá henni. Hún er 1,83. Hreyfigetan, 19 ára, hún er rosalegt efni,“ sagði Fannar Ólafsson. Ragnheiður skoraði 18 stig, tók 2 fráköst og átti þrjár stoðsendingar í leiknum og frammistaða hennar skilaði henni í úrvalslið umferðarinnar. Ragnheiður var í Íslandsmeistaraliði Hauka á síðasta tímabili og fékk fáar mínútur í leik þar. Hún færði sig yfir til Blika í sumar og hefur spilað yfir tuttugu mínútur í síðustu leikjum. Sérfræðingarnir ræddu einnig leiki KR og Skallagríms og Vals og Stjörnunnar ásamt því að fara yfir úrvalslið umferðarinnar. Umræðuna má sjá hér að neðan.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira