Kvöldfréttir Stöðvar 2 Vésteinn Örn Pétursson skrifar 16. nóvember 2018 18:05
Þeir sem hafa lent í vanskilum með smálán ættu að íhuga að kanna sinn rétt að sögn formanns starfshóps sem er að skoða umhverfi smálánafyrirtækja á Íslandi. Hann segir lánin mögulega vera ólögleg. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þá hittum við nemendur í íslensku við Háskóla Íslands sem eru óhræddir við að nota orð eins og að snooza, snappa eða chugga og segja að íslenskan sé í góðum málum. Tungumálinu er fagnað í dag í 23. sinn á Degi íslenskrar tungu. Fjögur þúsund íbúðir vantar inn á íbúðamarkaðinn í Reykjavík á næstu árum til þess að fullnægja þörf fyrir nýju húsnæði. Útgefin byggingarleyfi í höfuðborginni á einu ári hafa aldrei verið eins mörg eins og í ár. Borgarstjóri segir að félagslegum íbúðum geti fjölgað um allt að sjö hundruð á næstu fimm árum. 550 milljónir króna verða skornar niður af framlögum til samgöngumála á næsta ári, samkvæmt tillögu fjárlaganefndar Alþingis. Ekki liggur fyrir hvaða verkefni lenda undir niðurskurðarhnífnum en við ræðum við fjármálaráðherra um málið í kvöldfréttum. Loks hittum við bræðurna Leffe, Ludde og Lapan sem eru nýkomnir til landsins og hafa verið í nokkra vikna einangrun. Þeir eru blindrahundar sem voru keyptir frá Svíþjóð. Þetta og margt fleira í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira