Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. september 2026 17:16 Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands. Vísir/Einar Flugvirkjar fullyrða að forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair hafi hafnað tillögu flugvirkja um að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Félag flugvirkja segir að tilgangurinn með tillögunni hafi verið að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu á vef Flugvirkjafélags Íslands sem ætla má að sé rituð af Óskari Einarssyni formanni félagsins en yfirskriftin er: „Síminn minn hringir ekki.“ Þar segir að það séu vonbrigði að standa frammi fyrir því að vilja halda samtali gangandi með það að markmiði að finna lausn á deilu en fá ekkert svar. Ljóst er miðað við þetta að félagið stefnir enn að ótímabundnu verkfalli, sem á að hefjast aðfaranótt miðvikudags, 23. september. „Flugvirkjafélag Íslands hefur ítrekað boðist til að funda með Icelandair með það að markmiði að ná sáttum. Það hefur verið eindreginn vilji félagsins að nýta þann tíma sem gefst til að finna lausn við samningaborðið áður en að til vinnustöðvunar kemur. Það hefur enn ekki tekist. Við höfum einnig boðist til að funda með ráðherrum um málið án árangurs, en höfum þó fengið áheyrn hjá ráðuneytisstjórum í tveimur ráðuneytum.“ „Síminn minn hringir ekki“ Segir í yfirlýsingunni að um helgina hafi dregið til tíðinda milli samningsaðila. Með milligöngu ríkissáttasemjara hafi flugvirkjar og Icelandair verið í þreifingum sem hafi leitt til þess að ríkissáttasemjari hafi lagt fram innanhússtillögu sem samningsaðilar hafi átt að vinna að. Segist félagið vera reiðubúið að vinna áfram með þá tillögu. „Í viðleitni okkar til að skapa samningsaðilum svigrúm buðumst við jafnframt til að fresta boðuðum aðgerðum um sjö sólarhringa. Tilgangurinn var að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með tillöguna og kanna hvort hún gæti leitt til sátta. Í morgun bárust þau tíðindi að Icelandair hafi hafnað því boði.Það eru fyrst og fremst vonbrigði en samhliða vekur það upp spurningar um raunverulega stöðu samningsviðræðnanna,“ segir í yfirlýsingunni. „Þegar annar samningsaðilinn er reiðubúinn að leggja sitt af mörkum til að leita leiða til sátta, gefa viðræðunum meiri tíma og vinna með tillögu ríkissáttasemjara, en slíkt svigrúm er ekki þegið þá er eðlilegt að velta fyrir sér hvort raunverulegur samningsvilji sé til staðar. Mögulega segir staðan okkur að samningsviðræður séu fullreyndar. Eða mögulega er eitthvað í stöðunni sem við sjáum ekki enn. Við ætlum ekki að fullyrða um það. Það er ljóst að það þarf raunverulegan vilja tveggja til að ná samkomulagi. Við búum yfir þeim vilja. Síminn minn hringir ekki.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Icelandair Kjaramál Ferðaþjónusta Flug Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira