„Við erum fyrst og fremst að grípa til einhverra aðgerða ef allt fer á versta veg á þessum íslenska flugmarkaði. Stærsti viðskiptavinur okkar er WOW air og félagið hefur verið mikið í kastljósinu. Það gekk ekki eftir þessi sala til Icelandair og það er komin upp meiri óvissa,“ segir Sigþór Kristinn Skúlason, forstjóri Airport Associates. Sigþór segir að uppsögn starfsmannanna sé varúðarráðstöfun og uppsagnirnar verði dregnar til baka ef það tekst að tryggja fjármögnun WOW air með öðrum hætti, til dæmis með aðkomu nýs aðila að félaginu.
WOW air flytur fjóra af hverjum tíu flugfarþegum sem koma til landsins. Icelandair flytur aðra fjóra og á þriðja tug erlendra flugfélaga flytja tvo. Af þessari ástæðu er morgunljóst að íslensk ferðaþjónusta á mikið undir velgengni WOW air. Fall félagsins myndi hafa keðjuverkandi áhrif á rekstur hótela og gistihúsa, veitingastaða og rútu- og annarra ferðaþjónustufyrirtækja. Í sviðsmyndagreiningu sem samráðshópur stjórnvalda lét vinna í lok sumars kemur fram að landsframleiðsla myndi dragast saman um tvö til þrjú prósent, útflutningur myndi dragast saman um tíu prósent og gengi krónunnar myndi veikjast um 13 prósent ef WOW air færi í þrot.
Mikilvægi WOW air endurspeglast ágætlega því að í fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands frá 7. nóvember er á þremur stöðum fjallað um WOW air og óvissu um rekstrarhorfur flugfélagsins Þannig hafði óvissan um WOW air neikvæð áhrif á verðbólguvæntingar og ýtti undir veikingu á gengi íslensku krónunnar fyrr á þessu ári.
„Við erum búin að vera með þetta hangandi yfir okkur í íslensku efnahagslífi í þrjá mánuði. Óvissa er alltaf slæm og það er orðið mjög mikilvægt mál að við förum að fá einhverja vissu um það hvernig þetta mál þróast eða einhvern endi í þetta mál,“ segir Elvar.
Sveinn Þórarinssin hagfræðingur í hagfræðideild Landsbankans segir ástæðulaust að teikna upp of dökka mynd af stöðunni þótt allt fari á versta veg hjá WOW air.
„Ef að Ísland er áhugaverður kostur fyrir erlenda ferðamenn þá kemur einhver annar og tekur upp slakann. Það er því kannski alveg óþarfi að vera að mála upp of svarta mynd. Þetta kemur allt í ljós. Ef það er eftirspurn hjá ferðamönnum þá finnst manni líklegt að einhver flugfélög komi og fylli upp í skarðið og áhrifin verði minni en hversu mikil áhrifin verði (til skamms tíma) er ómögulegt að spá fyrir um,“ segir Sveinn.