Umræða um leyfisbréf Ragnar Þór Pétursson skrifar 21. nóvember 2018 11:28 Umræðu um skólamál ber að fagna. Uppeldi og menntun næstu kynslóða eru, ásamt umhverfismálum, líklega mikilvægustu mál sem við stöndum frammi fyrir sem þjóð. Upp á síðkastið hefur nokkuð farið fyrir umræðu um leyfisbréf í fjölmiðlum. Sú umræða hefur verið býsna einhliða af nokkrum ástæðum. Þegar ný lög voru sett um leik-, grunn- og framhaldsskóla árið 2008 var farið í ýmsar grundvallarbreytingar á menntakerfinu okkar. Eins og nýleg skýrsla Evrópumiðstöðvar um skóla án aðgreiningar sýnir þá virðist Íslendingum farast margt betur úr hendi en grundvallar kerfisbreytingar. Á ýmsum sviðum hafa orðið verulegar framfarir í kjölfar lagabreytinganna. Annað hefur gengið brösuglega. Þar mætti nefna ný viðmið um hæfni og tengsl þeirra við námsmat. Þar má líka nefna sveigjanleika á milli skólastiga og þar með útgáfu leyfisbréfa. Í tíu ár hefur ítrekað verið reynt að taka upp umræðu um leyfisbréf. Í tíu ár hefur það mistekist. Þegar nýr menntamálaráðherra tók við embætti var málið skoðað enn og aftur. Í stað þess að reyna enn einu sinni að taka málið upp á sömu forsendum og hingað til og höfðu engu skilað var skoðuð ný hugmynd: Eitt leyfisbréf óháð skólastigum. Þetta er ný og djörf nálgun og sumum hefur reynst auðvelt að afgreiða hana sem feilpúst án nokkurra vífilengja. Sérstaklega kann hugmyndin að virðast annarleg framhaldsskólakennurum. Nánast allar gerðir leyfisbréfa eru gefnar út á framhaldsskólastigi því þar er hefðin orðin sú að afmarka starfssvið með leyfisbréfi. Á hinum skólastigunum tveimur er þessu öðruvísi farið. Kennari sem sérhæfir sig í lestrarkennslu hefur ekkert annað leyfisbréf en kennari sem sérhæfir sig í sundkennslu eða deildarstjórn ef hann starfar í leik- eða grunnskóla. Það eru augljós vandkvæði sem fylgja því að auka sveigjanleika og samgang milli svona ólíkra kerfa. Í námi framhaldsskólakennara hefur verið lögð meiri áhersla á fagþekkingu og í grunn- og leikskóla hefur verið lögð meiri áhersla á sterkan uppeldis- og kennslufræðigrunn. Ef grunnskólakennari fer inn í framhaldsskóla, hví skyldu gerðar minni kröfur til fagþekkingar hans en annarra kennara? Ef framhaldsskólakennari fer inn í grunnskóla, hví skyldi hann fá afslátt á uppeldis- og kennslufræði? Í ljósi þess að fyrri tilraunir til að auka þennan sveigjanleika hafa engu skilað hefur staðið yfir samtal samtaka kennara, háskólasamfélagsins, yfirvalda og sveitarfélaga um hugmyndina um eitt leyfisbréf. Þar hefur verið leitast við að meta hvort slík hugmynd geti yfir höfuð gengið upp og með hvaða hætti væri þá hægt að tryggja faglegar kröfur og sérkenni skólastiga. Þær hugmyndir sem komið hafa fram í þeirri vinnu eru skoðaðar með mjög gagnrýnum hug. Því sem augljóslega gengur ekki upp er kastað af borðinu. Það sem lofar góðu er rýnt betur. Það má vera að þessi leið reynist ófær, eins og allar aðrar leiðir sem hingað til hafa verið reyndar, en það liggur fyrir að eitt markmið laganna frá 2008 var að auka sveigjanleikann. Það er enda margt sem mælir með honum. Það er hins vegar alls ekki auðvelt að koma honum á. Ég geri ráð fyrir að leikskólakennaranum þyki augljóst að í neðri bekkjum grunnskóla þurfi að auka vægi leiks sem kennsluaðferðar. Ég geri ráð fyrir að grunnskólakennarinn telji að í framhaldsskólann vanti aukna áherslu á uppeldis- og kennslufræði. Ég geri líka ráð fyrir því að framhaldsskólakennarinn telji að í efri bekki grunnskóla vanti meiri faggreinaþekkingu. Mig grunar líka að allir hefðu þeir rétt fyrir sér. Mikið hefur farið fyrir þeim sem hafna alfarið hugmyndinni um eitt leyfisbréf og telja hana grafa undan fagmennsku. Það kann að vera rétt. Kannski er ekki hægt að tryggja fagmennsku tryggilega í kerfi eins leyfisbréfs. Það er þá áhyggjuefni langt út fyrir þessa umræðu því allt skyldunám í landinu fer fram undir forsendum eins leyfisbréfs. Minna hefur farið fyrir stuðningi við hugmyndina. Það er líklega vegna þess að hugmyndin er enn á virku umræðustigi. Samtalið fer fram undir forsendum trúnaðar. Hvorki sveitarfélögin né ríkið; né háskólarnir né kennaraforystan hafa heimild til að ræða þau opinberlega nema að mjög takmörkuðu leyti. Ég fékk raunar leyfi annarra hagsmunaaðila til að skrifa þennan pistil og hef gætt þess að ræða hér ekki þær hugmyndir að útfærslum sem til skoðunar eru. Um þær ríkir enn trúnaður. Hann mun ég virða. Fari svo að samræðan skili endanlegri tillögu fer hún í frekara samráðsferli. Kennarasambandið mun þá hafa forgöngu um að ræða og kynna hugmyndina meðal kennara, háskólarnir ræða þær á víðum grunni í sínu baklandi og stjórnvöldum ber að kynna þær meðal almennings. Að því loknu tæki hvert aðildarfélag KÍ sjálfstæða afstöðu til málsins og sú afstaða yrði rædd í stjórn KÍ. Ég hef verið spurður af því af hverju ég hafi ekki lýst því yfir hvaða skoðun ég hafi almennt á hugmyndinni um eitt leyfisbréf úr því umræðan sé farin af stað. Ég hef svarað því á þrennan hátt. Í fyrsta lagi þannig að óábyrgt sé að taka afstöðu til mála út frá ófullkomnum upplýsingum. Sérstaklega ef málin eru flókin. Ég veit enn ekki hvernig útfærslan kæmi til með að líta út. Í öðru hef ég svarað því þannig að kennarasamtökin og aðrir hagsmunaaðilar verði að geta átt vettvang þar sem trúnaður ríki þar til aðilar ákveða annað. Í þriðja lagi hef ég svarað því þannig að aðeins tveir stjórnarmenn í stjórn KÍ séu kosnir í almennri atkvæðagreiðslu og það sé þeirra hlutverk að tryggja að sem flest sjónarmið komist að í umræðunni. Formaður og varaformaður KÍ verða að forðast það að taka t.d. sjálfkrafa afstöðu með hagsmunum stærstu aðildarfélaganna. Í þessu máli er mér t.d. alveg sérstaklega umhugað um stöðu tónlistarkennara sem lengi hafa barist fyrir faglegri viðurkenningu innan skólakerfisins sem og stjórnenda sem líklega myndu leika lykilhlutverk í breyttu kerfi. Þar fyrir utan er mitt hlutverk fyrst og fremst að leita sem flestra sjónarmiða svo umræðan, hvort sem það er inn á við eða út á við, geti verið fagleg og víðsýn. Það kemur væntanlega í ljós á næstu vikum hvort hugmynd um eitt leyfisbréf er á vetur setjandi. Komi fram fullmótuð tillaga hlakka ég mjög til hinnar faglegu umræðu sem hlýtur að fylgja. Því þótt þetta mál kunni að virka tæknilegt og flókið þá snýst það um grundvallaratriði er lúta að menntun. Og við þurfum meiri menntaumræðu, ekki minni.Höfundur er formaður Kennarasambands Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Þór Pétursson Mest lesið Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bætir tækni í kennslustofunni nám? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin alls staðar Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun