Fimm sluppu ómeiddir þegar snjóflóð féll á bíla við Flateyri Kjartan Kjartansson skrifar 30. nóvember 2018 20:00 Frá Flateyri. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Egill.
Tveir bílar lentu í snjóflóði sem féll á Flateyrarveg en fimm manns sem voru í þeim komust allir út ómeiddir og af sjálfsdáðum áður en slökkvilið og björgunarsveitarmenn komu á staðinn. Hlynur Kristjánsson, varðstjóri hjá slökkviliði Ísafjarðarbæjar, segir að flóðið hafi fallið á Flateyrarvegi á Hvilftarströnd innan við Flateyri. Þeir sem voru í bílunum sem lentu í flóðinu hafi verið komnir úr þeim þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn. Fólkið hafi verið skoðað en ekki farið með það á sjúkrahús. Björgunarsveitarmenn á Flateyri voru kallaðir út vegna flóðsins og starfssystkini þeirra á Ísafirði voru sett í viðbragðsstöðu. Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Vestfjörðum kemur fram að önnur bifreiðin hafi oltið með flóðinu frá veginum og niður í fjöruborð. Læknir og sjúkralið hafi skoðað fólkið en meiðsl þess hafi ekki verið teljandi. Veginum var lokað og hann verður ekki opnaður aftur í nótt. Einnig hefur verið ákveðið að loka veginum um Súðavíkurhlíð á miðnætti vegna hættu á snjóflóðum.
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Fleiri fréttir Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Sjá meira