Katla Rún eina hundrað plúsa konan í deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2018 17:45 Katla Rún Garðarsdóttir. Vísir/Hanna
Keflvíkingurinn Katla Rún Garðarsdóttir er nú langefst í plús og mínus í Domino´s deild kvenna í körfubolta. Katla Rún átti flottan leik með Keflavíkurkonum í gær þegar þær fóru í Borgarnes og unnu 89-83 sigur á heimastúlkum í Skallagrími. Keflavík var þarna að vinna sinn áttunda leik í röð. Keflavíkurliðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum í vetur en hefur síðan unnið öll lið deildarinnar í einum rykk og gott betur. Fyrstu sigur vetrarins kom einmitt í heimaleik á móti Skallagrími. Katla Rún Garðarsdóttir var með 10 stig og 4 stoðsendingar á rúmum 28 mínútum í leiknum í Borgarnesi í gærkvöldi og það sem meira er að Keflavíkurliðið vann þessar mínútur með 22 stigum. Það þýðir að Keflavík tapaði með 16 stigum þær tæpu tólf mínútur sem hún sat á bekknum. Katla Rún er nú með nítján plúsa foryustu á plús og mínus lista deildarinnar. Katla Rún hefur spilað rúmar 198 mínútur í deildinni í vertur og þær hafa Keflavíkurkonur unnið með 105 stigum. Katla hefur verið í plús í 9 af 10 leikjum sínum þar af í plús 53 í síðustu tveimur á móti Skallagrími (+22) og Snæfelli (+31). Án Kötlu hefur Keflavíkurliðið tapað hinum rúmu tvöhundruð mínútunum með 43 stigum. Næst á eftir Kötlu á listanum er Kristen Denise McCarthy hjá Snæfelli sem er með plús 86 en þriðja er síðan Keflvíkingurinn Salbjörg Ragna Sævarsdóttir. Keflavík á alls fjóra leikmenn á topp tíu listanum en bæði Snæfell og KR eiga þrjá. Þetta eru einmitt þrjú efstu lið deildarinnar en þau eru öll jöfn með 16 stig.Efstu konur í plús & mínus í Domino´s deild kvenna 2018-19: 1. Katla Rún Garðarsdóttir, Keflavík +105 2. Kristen Denise McCarthy, Snæfell +86 3. Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, Keflavík +81 4. Unnur Tara Jónsdóttir, KR +78 5. Brittanny Dinkins, Keflavík +74 6. Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík +72 7. Angelika Kowalska, Snæfell +71 8. Gunnhildur Gunnarsdóttir, Snæfell +67 9. Kiana Johnson, KR +65 10. Orla O'Reilly, KR +63
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Sjá meira