Varar við fjandsamlegum leiðtogum og stigmagnandi ofbeldi Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 2. febrúar 2019 22:21 Page kallar eftir því að almenningur komi auga á orsakasamhengið á milli þess að hafa fólk í valdastöðu sem "hatar annað fólk“ og ofbeldisins sem þrífist í samfélaginu. Vísir/getty
Kanadíska leikkonan Ellen Page hélt mikla eldræðu í spjallþætti Stephens Colbert en hún gerði spillt valdafólk meðal annars að umfjöllunarefni sínu. Hún segist vera orðin dauðþreytt á hómófóbíu og karlrembu. Page er gift listdansaranum Emmu Portner en hún segir að Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, óskaði sér að þær væru ekki giftar vegna afar umdeildra skoðana hans um samkynhneigð. „Varaforseti Bandaríkjanna óskar sér að ég og eiginkonan mín værum ekki ástfangnar,“ segir Page sem er nóg boðið. Pence hafi valdið hinsegin fólki í Indiana-ríki mikilli þjáningu þegar hann var ríkisstjóri. Hann hafi viljað banna hjónaband hinsegin fólks og trúað á svokallaða „conversion therapy“ sem er meðferð sem miðar að því að breyta kynhneigð samkynhneigðra einstaklinga. Page kallar eftir því að almenningur komi auga á orsakasamhengið á milli þess að hafa fólk í valdastöðu sem „hatar annað fólk“ og ofbeldisins sem þrífist í samfélaginu. Hún beinir orðum sínum til spilltra valdhafa: „Þú ert í valdastöðu og hatar fólk og þú vilt valda því þjáningu. Þú helgar ferlinum þínum því að valda þjáningu. Hvað heldur þú að gerist? Krakkar verða misnotaðir og þeir eiga eftir að svipta sig lífi og fólk á eftir að verða fyrir ofbeldi á götum úti,“ segir Page. Hún segist heppin að geta nýtt stöðu sína og sess í samfélaginu til að segja: „Þessu verður að linna, fjandinn hafi það!“
Bandaríkin Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Fleiri fréttir Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Sjá meira