Innlent

Ærumeiðingar verði ekki lengur refsiverðar

Kjartan Kjartansson skrifar
Fangelsisrefsingar liggja við ærumeiðingum í núgildandi hegningarlögum. Því vill dómsmálaráðherra breyta.
Fangelsisrefsingar liggja við ærumeiðingum í núgildandi hegningarlögum. Því vill dómsmálaráðherra breyta. Vísir/Vilhelm
Refsingar vegna ærumeiðinga verða afnumdar og úrræði vegna þeirra verða færð í sérstök lög á sviði einkaréttar verði nýtt frumvarp dómsmálaráðherra samþykkt á Alþingi. Með frumvarpinu yrði einnig felld úr gildi sérstök vernd sem opinberir starfsmenn, erlend ríki, þjóðhöfðingjar þeirra og fáni hafa notið.

Frumvarp dómsmálaráðherra um bætur vegna ærumeiðinga var lagt fram á Alþingi á föstudag. Hljóti það brautargengi á þingi verða ákvæði um ærumeiðingar fjarlægðar úr almennum hegningarlögum. Þannig muni fangelsisrefsingar ekki lengur liggja við þeim og verður aðeins hægt að krefjast miskabóta í einkaréttarmálum.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ákvæði núverandi hegningarlaga um ærumeiðingar samræmist illa tjáningarfrelsisákvæðum stjórnarskrár og Mannréttindasáttmála Evrópu. Frumvarpinu sé þannig ætlað að færa lagaumhverfi meiðyrðamála til nútímahorfs.

Verð frumvarpið að lögum verða ummæli meðal annars undanþegin bótaábyrgð ef um er að ræða gildisdóm, ef sýnt hefur verið fram á að þau hafi verið sönn eða ef þau eru talin réttlætanlegt framlag til umræðu sem varðar almenning. Ekki verður lengur saknæmt að breiða út ærumeiðandi ummæli annarra.

Þá verða felld úr lögum ákvæði um ómerkingu ummæla og heimild til að dæma fjárhæðir til að standa straum af kostnaði við birtingu á dómi í meiðyrðamáli. Ekki verður heldur lengur kveðið á um sérstaka vernd æru forseta eða erlendra ríkja, þjóðhöfðingja þeirra og fána.

Fyrirningartími krafna vegna ærumeiðinga verður styttur í eitt ár með frumvarpinu. Beinist ærumeiðing að látnum einstaklingi fær eftirlifandi maki, börn og foreldrar þess látna heimild til að krefjast miskabóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×