Mugabe í fjárhagsörðugleikum Hallgerður Kolbrún E Jónsdóttir skrifar 10. maí 2019 22:11 Robert og Grace Mugabe, fyrrverandi forsetahjón Simbabve.
Robert Mugabe, fyrrverandi forseti Simbabve, hefur auglýst fimm þreskivélar auk annarra framleiðslutækja til sölu á uppboði. Frá þessu var greint á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Auglýsingin birtist hjá uppboðsstofu þar sem fram kemur að minnst fjörutíu bifreiða hans séu til sölu, þar á meðal glæsibifreið og fimm Toyota Hilux pallbílar. Mugabe var komið frá valdastóli árið 2017 þegar herinn rændi völdum. Spekingar þar í landi segja söluna vera merki um að viðskiptaveldi fjölskyldunnar eigi í fjárhagslegum erfiðleikum, en meðal eigna Mugabe eru 21 sveitabýli. Í auglýsingunni kemur fram að uppboðið verði opið öllum og verði haldið á Gushungo kúabúinu sem er í eigu Mugabe á sunnudag. Mugabe fjölskyldan tók sér landið frá hvítum landeigendum, þegar ríkið setti af stað eignaumbætur sem hafa verið umdeildar. Árið 2015 bar Grace Mugabe út íbúa nærliggjandi þorps sem höfðu komið sér fyrir á landinu. Simbabveska dagblaðið Herald sagði ljóst að Mugabe hafi sett vélarnar á sölu vegna málsókna sem viðskiptaveldi hans hefur sætt vegna ógreiddra skulda. Breska ríkisútvarpið BBC tók viðtal við nokkra íbúa þorpsins sem Grace bar út sem hægt er að horfa á hér.
Simbabve Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira