Vandræðagangur með gírskiptingu olli slysi við flugstöðina Birgir Olgeirsson skrifar 8. júní 2019 12:19 Frá flugstöð Leifs Eiríkssonar. fréttablaðið/ernir
Ökumaður og farþegi í bifreið hans voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í vikunni eftir umferðarslys í Grindavík. Farþeginn hlaut áverka á höfði en var þó ekki talinn alvarlega slasaður. Tildrög slyssins voru þau að ökumaður annarrar bifreiðar sinnti ekki stöðvunarskyldu og ók í veg fyrir fyrrgreindu bifreiðina. Þá varð umferðaróhapp við Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar ferðamaður lenti í vandræðum með gírana á bifreið sem hann ók með þeim afleiðingum að hún snarstöðvaðist á veginum. Annar ökumaður sem á eftir kom var þessu óviðbúinn og ók aftan á bifreið ferðamannsins. Raunar taldi hann að ferðamaðurinn hefði ekið aftur á bak þegar óhappið varð. Ekki urðu slys á fólki. Þá voru fáeinir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur og einn ók á nagladekkjum. Bifreið hins síðastnefnda var óskoðuð og voru skráningarmerki tekin af henni. Karlmaður á fimmtugsaldri sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag vegna gruns um dreifingu og sölu fíkniefna játaði við skýrslutöku að hafa stundað það athæfi um nokkurt skeið. Jafnframt framvísaði hann kannabisefnum sem hann kvaðst hafa ætlað að selja og afsalaði þeim til eyðingar hjá lögreglu.
Grindavík Keflavíkurflugvöllur Samgönguslys Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Alls kyns jól um allan heim Erlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira