Innlent

Segir menntakerfið skorta svigrúm til launahækkana

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Yfirmaður menntamála hjá Efnahags- og framfarastofnuninni OECD segir að veita þurfi kennurum meira svigrúm til að vinna með ólíkar kennsluaðferðir. Að hans mati eru grunnlaun kennara hér á landi ekki slæm en þó vanti möguleikann á að vinna sig upp í launum.

Í morgun fór fram fundur Samtaka atvinnulífsins og Háskóla Íslands um umbætur í menntakerfinu og stöðu Íslands í samanburði við aðrar þjóðir. Flutningsmaður fundarins var Andreas Schleicher, yfirmaður menntamála hjá Efnahags- og framfarastofnuninni OECD.

Hann segir íslenskt menntakerfi á góðum stað en þó skorti hraða í framþróun og forgangsröðun fjármagns. Nemendur séu almennt ánægðir í námi á Íslandi en þó þurfi að leggja áherslu á hvern og einn nemanda.

„Kerfið einbeitir sér mjög að því að koma öllum á sama stað hvað menntun varðar en það hefur misst dálítið sjónar á nemendum með sérstaka hæfileika og getu. Ég held að þetta séu svið sem mjög mikilvægt sé að leggja áherslu á,“ sagði Andreas Schleicher, yfirmaður menntamála hjá Efnahags- og framfarastofnuninni OECD.

Andreas segir kerfið hafa misst sjónar á nemendum með sérstaka hæfileika og getu.vísir/vilhelm
Styrkja þurfi starfsumhverfi kennara og veita þeim meira frelsi til að kenna á ólíka vegu og vinna að nýjum kennsluaðferðum.

„Að skaffa kennurum aðlaðandi vinnustað, ekki bara fjárhagslega aðlaðandi heldur vitsmunalega aðlaðandi, gefa kennurum rými til að vera skapandi hönnuðir frumlegs námsumhverfis, aðþeir hafi nægan tíma til að vinna með öðrum kennurum, aðþví að móta góða kennsluhætti og þróa nýjar aðferðir,“ sagði Andreas.

Einnig þurfi að vera möguleiki fyrir kennara til að vinna sig upp í launum.

„Til dæmis eru byrjunarlaun kennara á Íslandi ekki svo slæm en eina leiðin til að fá aðeins meiri peninga er að eldast. Kerfið viðurkennir ekki sérstaka viðleitni, sérstaka hæfileika. Þetta er það sem vantar í menningunni hérna,“ sagði Andreas.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×