Vilja fá meiri pening frá Garðabæ fyrir góðan árangur Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 6. júní 2019 09:30 Meistaraflokkur Álftaness í körfubolta varð Íslands- og deildarmeistari í 2. deild en liðið tapaði einungis tveimur leikjum á tímabilinu. Fréttablaðið/Anton
Bæjarráði Garðabæjar barst bréf frá körfuboltadeild Álftaness þar sem beðið er um að bærinn borgi 70 prósent af komandi útgjöldum. Álftanes fór upp í 1. deild og styrkti bærinn deildina um milljón. Með auknum árangri kemur aukinn kostnaður og biður deildin nú bæinn um 4,4 milljónir af 6,3 milljóna kostnaðaráætlun. Það sem upp á vantar ætlar deildin að safna sjálf. Meistaraflokkur UMFÁ karla í körfubolta varð Íslands- og deildarmeistari í 2. deild en liðið tapaði aðeins tveimur leikjum á tímabilinu. Liðið tryggði sér þátttökurétt í 1. deild að ári en fyrir aðeins tveimur árum spilaði liðið í 3. deild. Samkvæmt bréfinu hefur félagið sýnt ráðdeild og tekist með litlum rekstrarkostnaði að halda úti öflugu starfi með miklum árangri. Er bent á að verulega munaði um framlag Garðabæjar til körfuknattleiksdeildarinnar sem hljóðaði upp á eina milljón króna þegar liðið komst upp í 2. deild, en fram að því hafði liðið ekki fengið fjárhagsaðstoð frá bænum heldur aðstöðu. Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar hefur unnið fjárhagsáætlun fyrir komandi ár en bent er á það í bréfinu til bæjarins að leikir í 1. deild eru mun fleiri, æfingar og þjálfun umfangsmeiri, dómarakostnaður hærri og meiri kröfur til leikmanna. Fer stjórnin fram á viðauka við núgildandi samning þar sem framlag til körfunnar mun aukast. Deildin telur það vera körfuboltanum í Garðabæ til mikilla heilla að öflugt lið spili í 1. deild. Samstarfsfletir aukist og möguleikar á þróun fyrir körfubolta í bænum. Þannig auki það líkur á að góður árangur náist ef bæði lið Álftaness og Stjörnunnar haldi úti metnaðarfullu starfi í 1. deild og Domino’s-deildinni. Bæjarráðið vísaði bréfinu til umfjöllunar aðalstjórnar Ungmennafélags Álftaness og íþrótta- og tómstundaráðs sem og til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Birtist í Fréttablaðinu Garðabær Íslenski körfuboltinn Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Sport Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira