Vonsviknir makrílveiðimenn ætla í mál við ríkið Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. júní 2019 22:01 Ásmundur Skeggjason talsmaður Félags makrílveiðimanna. Vísir/ÞÞ
Fyrirtæki sem standa að Félagi makrílveiðimanna munu höfða skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu eftir að frumvarp um kvótasetningu á makríl varð að lögum á Alþingi í dag. Formaður félagsins segir það hafa komið félagsmönnum á óvarp að frumvarpið hafi verið samþykkt óbreytt. Frumvarpið, sem fjallar um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, var samþykkt á Alþingi í dag með 28 greiddum atkvæðum. 18 þingmenn stjórnarandstöðunnar greiddu atkvæði á móti frumvarpinu en það hefur verið afar umdeilt.Sjá einnig: „Við munum væntanlega bara afhenda ráðherra lyklana að útgerðunum okkar“ Með frumvarpinu falla veiðar á makríl nú undir íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið en lítil útgerðarfyrirtæki hafa gagnrýnt frumvarpið harðlega og sagt það færa miklar heimildir frá minnstu og viðkvæmustu útgerðum landsins til stærstu útgerðarfyrirtækjanna.Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra.Vísir/vilhelmÞannig munu uppsjávarskip í eigu stærri útgerðarfyrirtækja fá 15 prósent meira af úthlutuðum makrílkvóta. Frystiskip missa tíu prósent af sínum kvóta, ísfisktogarar í eigu meðalstórra útgerðarfyrirtækja missa 40 prósent af kvótanum sínum og krókaskip í eigu lítilla útgerða missa 45 prósent. Eitt það umdeildasta í frumvarpinu eru breytingartillögur meirihluta atvinnuveganefndar sem fela í sér að makrílkvóti skiptist í tvo flokka, A- og B-flokk. Í B-flokki verða línu- og handfærabátar og verður þeim óheimilt að framselja kvótann en öll önnur skip sem eru með makrílkvóta í A-flokki þurfa ekki að þola slíkar skerðingar á heimildum sínum.Vonsviknir með óvænta niðurstöðu Ásmundur Skeggjason talsmaður Félags makrílveiðimanna hefur áður gefið út að smábátaeigendur sjái sér ekki annað fært en að fara í mál við ríkið vegna laganna. Hann segir í samtali við Vísi í dag að félagið muni standa við málshöfðunina. „Við vorum í rauninni bara að fá þessar upplýsingar um að þetta hefði verið samþykkt í óbreyttri mynd og höldum okkar striki bara,“ segir Ásmundur. „Við teljum að jafnræðis sé ekki gætt við úthlutunina og sjáum því í rauninni engan annan kost en að skera úr um lögmæti fyrir dómstólum.“ Niðurstaðan í dag sé jafnframt mikil vonbrigði – og enn fremur óvænt. „Þetta kom okkur mjög á óvart að þetta skyldi fara í gegn svona óbreytt. Við trúðum því ekki að þetta yrði samþykkt svona.“ Ásmundur segir að stjórn félagsins muni setjast niður með lögfræðingi sínum eins fljótt og auðið er, sem þó verði líklega ekki fyrr en eftir sumarfrí.
Alþingi Sjávarútvegur Tengdar fréttir „Við munum væntanlega bara afhenda ráðherra lyklana að útgerðunum okkar“ Smábátaútgerðir ætla að höfða skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu verði frumvarp um kvótasetningu á makríl að lögum. Málshöfðunin er meðal annars til komin vegna breytinga atvinnuveganefndar Alþingis á frumvarpinu sem fyrirtækin telja að gangi í berhögg við jafnræðisreglu stjórnarskrár. 13. júní 2019 18:30 Telja makrílfrumvarp sjávarútvegsráðherra í þágu stærri útgerðarfyrirtækja Verði frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu makríls að lögum mun það fækka enn frekar þeim smábátum sem möguleika hafa á að stunda makrílveiðar að mati smábátaeigenda. Í frumvarpinu er miðað við tíu ára veiðireynslu sem hentar helst stærri útgerðum sem mokveiddu makríl á fyrstu árunum eftir hrunið. 2. maí 2019 18:00 Bótakröfur á ríkið vegna makrílkvóta Ríkislögmaður staðfestir að borist hafi stefnur vegna kvótasetningar makríls í upphafi áratugarins en gefur ekki upp fjölda eða bótakröfur. Heimildir herma að stórir aðilar stefni. Kröfur gætu numið allt að 35 milljörðum króna. 19. júní 2019 06:00 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira
„Við munum væntanlega bara afhenda ráðherra lyklana að útgerðunum okkar“ Smábátaútgerðir ætla að höfða skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu verði frumvarp um kvótasetningu á makríl að lögum. Málshöfðunin er meðal annars til komin vegna breytinga atvinnuveganefndar Alþingis á frumvarpinu sem fyrirtækin telja að gangi í berhögg við jafnræðisreglu stjórnarskrár. 13. júní 2019 18:30
Telja makrílfrumvarp sjávarútvegsráðherra í þágu stærri útgerðarfyrirtækja Verði frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu makríls að lögum mun það fækka enn frekar þeim smábátum sem möguleika hafa á að stunda makrílveiðar að mati smábátaeigenda. Í frumvarpinu er miðað við tíu ára veiðireynslu sem hentar helst stærri útgerðum sem mokveiddu makríl á fyrstu árunum eftir hrunið. 2. maí 2019 18:00
Bótakröfur á ríkið vegna makrílkvóta Ríkislögmaður staðfestir að borist hafi stefnur vegna kvótasetningar makríls í upphafi áratugarins en gefur ekki upp fjölda eða bótakröfur. Heimildir herma að stórir aðilar stefni. Kröfur gætu numið allt að 35 milljörðum króna. 19. júní 2019 06:00