Þetta sagði dómarinn við leikmenn Liverpool og Tottenham í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2019 14:30 Virgil van Dijk með Meistaradeildarbikarinn. Vísir/Getty
1. júní 2019 er eftirminnilegur dagur fyrir stuðningsmenn Liverpool enda eru margir þeirra enn að fagna sigrinum á Tottenham í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Liverpool hefur nú sett saman myndband með nýjum myndbrotum frá þessum sögulega degi þegar Liverpool vann Evrópukeppni meistaraliða í sjötta sinn í sögu félagsins. Liverpool vann úrslitaleikinn á móti Tottenham 2-0 þar sem Mohamed Salah og Divock Origi skoruðu mörkin. Leikurinn var spilaður á Wanda Metropolitano leikvanginum í Madrid. Í myndbandinu er farið yfir gang mála í leiknum allt frá blaðamannafundum knattspyrnustjóranna fyrir leik þar til að Liverpool fagnaði sigri í leikslok. Stuðningsmennirnir eru að sjálfsögðu í sviðsljósinu í þessu myndbandi. Myndbrotin eru nær öll frá nýjum sjónarhornum en þau sem menn sáu í sjónvarpsútsendingunnni á sínum tíma og mörg þeirra eru líka tekin upp að tjaldarbaki. Það má líka heyra það sem dómari leiksins sagði við leikmenn liðanna í úrslitaleiknum á stóru mómentum leiksins og þá fékk myndavélin að fara inn í dómaraherbergið í hálfleik. Slóveninn Damir Skomina dæmdi þennan stærsta leik ársins í evrópska fótboltanum. Myndbandið endar síðan með fögnuði leikmanna Liverpool sem náðu þarna að vinna sinn fyrsta titil undir stjórn Jürgen Klopp. Það er hægt að sjá þetta dramatíska myndband hér fyrir neðan.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Sjá meira